Atli hefur ekkert heyrt frá Völsurum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 2. júlí 2009 14:45 Atli Eðvaldsson.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu í morgun þá hefur Atli Eðvaldsson, fyrrum landsliðsþjálfari, talsverðan áhuga á því að taka við liði Vals af Willum Þór Þórssyni. Nafn Atla er á meðal þeirra sem hafa verið nefnd í starfið. „Ég hef ekki heyrt neitt. Það er í rauninni ekkert óeðlilegt við það. Þeir eiga stóran leik í kvöld og eru eflaust að hugsa um hann. Eftir þann leik hljóta þeir að setjast niður og fara yfir stöðuna," sagði Atli við Vísi. „Ef þeir hafa áhuga á að fá mig þá hljóta þeir að hafa samband fyrr en síðar. Ég er til og þarna er ég uppalinn. Ef ég á ekki að gera það hver á þá að gera það? „Svo getur vel verið að það gangi vel í kvöld og Toggi klári svo bara tímabilið. Maður veit aldrei í þessum bransa." Atli er fyrrum Valsmaður sem hefur afrekað allt með Val. „Ég á aðeins eftir að þjálfa hjá Val. Ég ætla mér að þjálfa einhvern tímann hjá félaginu en hvort það verður núna eða síðar verður að koma í ljós," sagði Atli. Það er ekki allir Valsarar sáttir við þá hugmynd að Atli taki við liðinu og þeir sem helst eru á móti því eru þeir sem móðguðust hvað mest er hann fór í KR á sínum tíma. „Ef menn ætla að vera svo barnalegir að nota það sem eitthvað gegn mér þá verða þeir að eiga það við sig. Það var fullt af mönnum sem þoldu mig ekki á sínum tíma bara af því ég var Valsari. „Svo var fullt af mönnum í KR sem þoldu mig ekki þegar ég kom þangað því ég var Valsari. Þannig er þetta bara en ég á fullt af vinum í báðum félögum. „Engu að síður er það þannig að ef maður er elskaður af öllum þá hlýtur maður að vera að gera eitthvað rangt," sagði Atli Eðvaldsson.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Joshua í bílslysi þar sem tveir létust Sport Þreytt á umræðu um líkamann sinn: „Á ekki að tjá sig um það“ Sport Hneysklaður á ósönnum orðrómum Fótbolti Ekkja Jota þakklát: „Hefur meiri þýðingu en orð geta lýst“ Enski boltinn Hættir ekki fyrr en hann skorar þúsund mörk Fótbolti Segja að Wirtz græði á fjarveru Salah: „Sé hann fljúga í gang“ Enski boltinn „Þegar þú spilar við Gary Anderson er alltaf pláss fyrir flugeldasýningu“ Sport Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Semenyo vill að allt verði klárt fyrir nýársdag Enski boltinn Skynjar stress hjá Arsenal Enski boltinn Fleiri fréttir Enn kvarnast úr liði Blika Leið Víkings að titlinum rifjuð upp í kvöld Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Sjá meira