Heilsuspítali mun skila milljörðum í gjaldeyristekjur 31. ágúst 2009 20:08 Úr myndasafni. Mynd/Haraldur Jónasson
Stefnt er að því að hefja byggingu á einkaspítala og heilsuhóteli á næsta ári. Forsvarsmenn spítalans telja að starfsemin muni geta skilað allt að 10 þúsund ferðamönnum til landsins og rúmlega 10 milljörðum í gjaldeyristekjur. Fyrirhugaður spítali verði byggður upp á grænum gildum, að sögn framkvæmdastjóra Primacare sem stendur á bak við verkefnið. Rætt var við Gunnar Ármannsson, framkvæmdastjóra Primacare sem stendur á bak við fyrirhugaðan spítala, í Kastljósi í kvöld. Þar kom fram að spítalinn verður sá eini i heiminum sem mun sérhæfa sig í mjaðmaskipta- og hnjáliðaaðgerðum en sjúklingarnir munu eingöngu koma frá útlöndum. Gunnar sagði mikla eftirspurn verða eftir slíkum aðgerðum á næstum árum vegna svokallaðra lífsstílsjúkdóma á borð við offitu og sykursýki. „Við ætlum að horfa á þennan gríðarlega stóra markað." Áætlanir gera ráð fyrir að fyrirhugaður spítali verði svipaður að stærð og Barnaspítali Hringsins, með um 65 til 70 rúm. Gunnar sagði að framkvæmdar verði á bilinu 3000 til 3500 aðgerðir á ári hverju. „Með þessum sjúklingum koma yfirleitt alltaf einhverjir úr fjölskyldunni. Kannski einn eða tveir með hverjum. Þannig að við erum kannski að horfa fram á það að landsins komi 10 þúsund ferðamenn á hverju ári til að koma í þessar aðgerðir," sagði Gunnar. Forsvarsmenn spítalans hafa ekki rætt við Ögmund Jónasson, heilbrigðisráðherra, vegna málsins.
Mest lesið Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Innlent Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Innlent Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Innlent „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fleiri fréttir „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Sjá meira