Guðmundur Steinarsson: Þessir 1-0 sigrar telja oft svo rosalega mikið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. júlí 2009 21:52 Guðmunur Steinarsson lék á ný með Keflavík í kvöld.
Guðmundur Steinarsson lék sinn fyrsta leik með Keflavík á tímabilinu eftir að hafa verið í herbúðum Vaduz frá Liechtenstein í hálft ár. Guðmundur var mjög ógnandi í fyrri hálfleik og lagði síðan upp sigurmarkið í seinni hálfleik í 1-0 heimasigri Keflavíkur á Fylki. „Það er ljómandi gott að vera kominn aftur í Keflavíkurbúninginn. Þetta er búið að vera löng bið og það er gott að vera kominn á stað aftur," sagði Guðmundur sem virtist vera að gera sig líklegan að skjóta sjálfur þegar Hólmar Örn Rúnarsson kom aðvífandi og skoraði sigurmarkið. „Þetta er ein besta stoðsendingin sem sést hefur á þessum velli," sagði Guðmundur í léttum tón. „Þetta mark tryggði okkur þrjú stig og við héldum síðan hreinu. Það var bæði mjög mikilvægt fyrir okkur að ná í öll stigin en líka að halda markinu hreinu. Þessir 1-0 sigrar telja oft svo rosalega mikið og eru oft á tíðum mun sætari líka," sagði Guðmundur en með þessum sigri náði Keflavíkurliðið Fylkismönnum að stigum. „Nú er í fyrsta sinn allur hópurinn kominn saman og tilbúinn að spila. Menn eru að koma til baka úr meiðslum og þegar allir eru klárir þá vitum við að við erum með sterkan hóp. Þetta var orðið svolítið þunnskipað fyrir nokkrum vikum en þegar við erum með fullskipað lið þá eigum við erindi á toppinn," sagði Guðmundur og hann var ánægður með vörnina. „Það var stórkostleg að halda hreinu og það gefur öllum varnarleik liðsins mikið sjálfstraust. Þetta segir okkur að við vorum að gera eitthvað rétt í vörninni því þeir áttu ekki mikið af hættulegum færum," sagði Guðmundur ánægður og hann var líka sáttur við eigin frammistöðu. „Þetta var örugglega ágætis leikur hjá manni en maður verður að sjá hann aftur til þess að geta dæmt hann. Ég hefði vissulega viljað setja mark enda sóknarmaður en sigurinn telur meira," sagði Guðmundur að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Fleiri fréttir Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ „Langar bara að verða betri í fótbolta“ Helgi Guðjóns: Tökum eldgömlu klisjuna um einn leik í einu Uppgjörið: ÍBV - ÍA 1-3 | Með þrjú stig upp á fasta landið Uppgjörið: FH - Víkingur R. 2-4 | Fyrsta tap FH í áttatíu daga Uppgjörið: KR – Breiðablik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm „Horfum bara á að enda tímabilið í topp sex“ „Þurfum að læra að spila leiki af þessari stærðargráðu“ „Við þurfum að gefa meira í þetta maður“ „Held að þetta hafi verið góð auglýsing fyrir Bestu deild kvenna“ Sjá meira