Umföllun: Tvö víti fóru forgörðum í frábærum Fjölnissigri Andri Ólafsson skrifar 23. júlí 2009 18:15 Valsmaðurinn Helgi Sigurðsson í leik á móti Grindavík. Mynd/Vilhelm
Fjölnir vann öruggan 2-0 sigur á Valsmönnum í Grafarvogi í kvöld. Fjölnismenn léku líka einn af sínum bestu leikjum í sumar og voru afar öryggir í varnarleik sínum auk þess sem þeir áttu stórhættulegar skyndisóknir. Valsmenn byrjuðu þó leikinn betur og sóttu meira framan af. Sérstaklega náðu Ian Jeffs og Ólafur Páll Snorrason góðum rispum en því miður fyrir Valsmenn skilaði það litlu. Fjölnismenn unnu sig smátt og smátt inn í leikinn og uppskáru mark á 19. mínútu þegar besti maður leiksins, Tómas Leifsson, stakk boltanum inn á Illuga Þór Gunnarsson sem sendi boltann framhjá Haraldi Björnssyni, markverði Valsmanna, úr þröngu færi. Fjölnismenn komust líka yfir í síðasta leik sínum á móti KR en náðu ekki að fylgja því eftir og töpuðu leiknum. Þeir virtust staðráðnir í að láta það ekki endurtaka sig og efldust við markið. Það skilaði öðru marki, tuttugu mínútum síðar. Það var einstaklega laglegt. Varnarmenn Fjölnis leystu pressu sem Valsmenn settu á þá og spiluðu boltanum yfirvegað á milli sín. Boltinn barst manna á milli upp völlinn og Gunnar Már Guðmundsson rak smiðshöggið á fallega uppbyggða sókn með nákvæmu skoti í fjærhornið af 18 metra færi. Staðan því 2-0 í hálfleik. Valsmenn byrjuðu seinni hálfleikinn betur og voru meira með boltann. Þeir fengu fljótlega víti eftir að Pétur Markan fékk sendingu inn fyrir vörn Fjölnismanna. Hrafn Davíðsson, markvörður Fjölnis, reyndi að ná til boltans en Pétur varð fyrri til. Hann lét sig hins vegar detta eftir litla snertingu við Hrafn við lítin fögnuð fyrrum liðsfélaga sinna hjá Fjölni. Ódýrt víti en líklega réttur dómur. Hrafn bætti hins vegar upp fyrir mistökin með því að verja slakt víti Helga Sigurðssonar. Góður dómari leikssins Einar Örn Daníelsson dæmdi annað víti skömmu síðar. Andri Valur Ívarsson, framherji Fjölnis, lék þá á Bjarna Ólaf við endalínuna og gaf fyrir. Atli Sveinn freistaði þess að hreinsa frá en fékk boltann í hendina. Gunnar Már tók vítið en Haraldur varði sitt annað víti í röð. Jónas Grani fékk frákastið og gat gulltryggt leikinn fyrir Fjölni en Haraldur lokaði markinu og varði glæsilega. Valsmenn misstu nokkuð móðinn við þetta. Þeir voru mikið með boltann en sköpuðu fá færi. Sóknir þeirra voru hægar og fyrirsjáanlegar. Fjölnismenn voru hins vegar hættulegir í skyndisóknum og sköpuðu nokkur færi til að bæta við mörkum. Þau komu hins vegar ekki og lokatölur því 2-0 og sanngjarn sigur Fjölnis í húsi. Valsmenn eru nú búnir að tapa tveimur leikjum í röð eftir að unnið KR í fyrsta leiknum undir stjórn Atla Eðvaldssonar. Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins var með með beina lýsingu frá leiknum Smelltu hér til að opna Boltavaktina og lesa lýsingu leiksins: Fjölnir - Valur Fjölnir -Valur 2-0 1-0 Illugi Gunnarsson (19) 2-0 Gunnar Már Guðmundsson (39) Fjölnisvöllur. Áhorfendur: 1120 Dómari: Einar Örn Daníelsson (7) Skot (á mark): 10-10 (3-3) Varin skot: 2 -1 Horn: 4-4 Aukaspyrnur fengnar: 8-6 Rangstöður: 5-2 Gul spjöld: Atli Steinn (70) Sigurbjörn (74) Hrafn (65) Andri Steinn (67) Fjölnir (3-5-2): Hrafn Davíðsson 7 Ásgeir Aron Ásgeirsson 6 Ólafur Páll Johnson 6 Gunnar Valur Gunnarsson 6 Illugi Þór Gunnarsson 7 Gunnar Már Guðmundsson 7Tómas Leifsson 8Andri Steinn Birgisson 8 (´88 Ágúst Þór Ágústsson) Magnús Ingi Einarsson 6 Andri Valdur Ívarsson 7 (´82 Ragnar Heimir Gunnarsson) Jónas Grani Garðarsson 6 (´78 Olgeir Óskarsson) Valur (4-2-3-1): Haraldur Björnsson 5 Ian Jeffs 5 Atli Sveinn Þórarinsson 4 Reynir Leósson 4 Bjarni Ólafur Eiríksson 5 Baldur Bett 4 (´80 Guðmundur Steinn Hafsteinsson) Sigurbjörn Hreiðarsson 4 Pétur Markan 4 (´72 Hafþór Ægir Vilhjálmsson 4) Arnar Gunnlaugsson 5 Ólafur Páll Snorrason 4 (´58 Viktor Unnar Illugason 6 ) Helgi Sigurðsson 5
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Fleiri fréttir Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ „Langar bara að verða betri í fótbolta“ Helgi Guðjóns: Tökum eldgömlu klisjuna um einn leik í einu Uppgjörið: ÍBV - ÍA 1-3 | Með þrjú stig upp á fasta landið Uppgjörið: FH - Víkingur R. 2-4 | Fyrsta tap FH í áttatíu daga Uppgjörið: KR – Breiðablik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm „Horfum bara á að enda tímabilið í topp sex“ „Þurfum að læra að spila leiki af þessari stærðargráðu“ „Við þurfum að gefa meira í þetta maður“ „Held að þetta hafi verið góð auglýsing fyrir Bestu deild kvenna“ Sjá meira