United á svipað mál og Chelsea yfir höfði sér Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. september 2009 09:00 Paul Pogba, til hægri, í leik með franska U-16 landsliðinu í apríl síðastliðnum. Pogba er fæddur árið 1993. Nordic Photos / Bongarts
Svo gæti farið að Manchester United verði dæmt í samskonar bann og Chelsea fékk frá Alþjóða knattspyrnusambandinu, FIFA, í gær. Þá var greint frá því að Chelsea fengi ekki að kaupa nýja leikmenn til félagsins fyrr en í janúar 2011. Ástæðan var að félagið var sagt hafa beitt ólöglegum aðferðum við að lokka við sig ungan leikmann frá franska félaginu Lens árið 2007. Annað franskt félag, Le Havre, sakar Sir Alex Ferguson og Manchester United um svipuð vinnubrögð þegar félagið fékk annan ungan Frakka, Paul Pogba, til að ganga til liðs við United. Forráðamenn United neita því hins vegar staðfastlega að hafa gert nokkuð rangt. „Þetta er alger þvæla. Það var allt gert innan regluramma Knattspyrnusambands Evrópu," sagði talsmaður United í samtali við enska fjölmiðla. Alain Belsoeur, framkvæmdarstjóri Le Havre, er ekki sama sinnis og segir að félagið hafi sannanir fyrir því að United hafi brotið reglur UEFA og FIFA. „Við erum enn að sækja okkar mál. Þetta er mjög alvarlegt mál. En við erum sannfærðir um að hafa betur því þjónar ekki aðeins tilgangi okkar heldur íþróttarinnar allar." „Við eyðum fimm milljónum evra í okkar knattspyrnuakademíu ár hvert en velta félagsins alls er ekki nema tólf milljónir. Það er því gríðarlega mikil fjárfesting fyrir okkur." „Við sinnum því svona vel til að fá góða leikmenn inn í aðalliðið okkar, ekki til að ala upp leikmenn fyrir önnur félög." „Hver er tilgangurinn með því að fjárfesta í akademíum ef leikmennirnir fara sextán ára gamlir? Þetta er án nokkurs vafa skýr skilaboð frá FIFA um að vernda menntunarkerfið.“
Mest lesið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Sport Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfirvinnu Sport Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Reikna með Kane en vita ekki hvenær Körfubolti Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Fleiri fréttir „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Sjá meira