Barentshafið fullt af þorski 21. september 2009 06:45
Bráðabirgðaniðurstöður úr rannsóknum Norðmanna og Rússa í Barentshafi sýna að stofnar þorsks og ýsu eru í afar góðu ástandi. Þessar niðurstöður vekja athygli þar sem veiðin undanfarinn áratug hefur verið langt umfram ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknastofnunarinnar (ICES). Fiskifræðingar eru ekki sammála um hvort Íslendingar geti lært af þessari þróun í Barentshafinu. Mesta athygli vekur stór þorskstofn en hrygningarstofninn er áætlaður um milljón tonn og hefur því vaxið um 300 prósent frá stofnmati frá síðustu aldamótum. Hefur þorskstofninn í Barentshafi ekki verið jafn stór frá árinu 1948, ef þessar nýjustu mælingar reynast réttar. Útgefnir heildarkvótar Norðmanna og Rússa í Barentshafi hafa um árabil verið mun hærri en ICES hefur ráðlagt. Er þá ótalið að Rússar hafa útgefna kvóta að engu og veiða á hverju ári 100 til 200 þúsund tonnum meira af þorski úr Barentshafi en fellur þeim í skaut við úthlutun. Þetta hefur norska fiskistofan viðurkennt opinberlega. Heildarþorskkvóti í Barentshafi í ár er 546 þúsund tonn sem var tuttugu prósent aukning frá fyrra ári. Útlit er fyrir að sá kvóti verði aukinn um 50 þúsund tonn á næsta ári og verði kominn í 630 þúsund tonn árið 2011. Jón Kristjánsson fiskifræðingur hefur lengi haldið því fram að Íslandsmið þoli meiri veiði. „Það er athyglisvert hvað fiskstofnar standa vel, sérstaklega þorskurinn. Opinberar tölur segja að veiði umfram ráðgjöf sé mörg hundruð þúsund tonn og sennilega er það vanáætlað því enginn veit með vissu hvað Rússarnir veiða. Ég hef alla tíð haldið því fram að það þyrfti að veiða mikið til að halda uppi vexti og koma í veg fyrir að þorskurinn éti sig sjálfur út á gaddinn." Jón segist ekki vera í aðstöðu til að meta hvort mikilli veiði sé að þakka að ástandið er svo gott í Barentshafi eins og raun ber vitni. „Ég tel þó víst að hún hefur síður en svo skemmt fyrir og því er grátlegt að horfa upp á að stjórnvöld hér heima skuli fara blint eftir ICES og Hafró, og þora ekki að bæta við einu einasta tonni, nú þegar þörfin er mest." Í ræðu og riti hafa sérfræðingar efast um gildi þess að horfa til Barentshafsins þegar færð eru rök fyrir að aukin veiði hér gæti skilað sama árangri. Barentshafið sé að mörgu leyti ólíkt og sveiflur þar enn meiri en hér. Það sem bæði hafsvæðin eiga þó sameiginlegt er mikil hlýnun, sem Norðmenn þakka vöxt þorskstofnsins undanfarin ár. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira