Skorar á forseta ASÍ að hætta 10. nóvember 2009 06:45 Ragnar Þór Ingólfsson Segir ASÍ hafa haft frumkvæði að frestun launahækkana og krefst tafarlausrar afsagnar forseta sambandsins. „
Hér með lýsi ég yfir vantrausti á Gylfa Arnbjörnsson og skora á hann að segja af sér án tafar,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í Verslunarmannafélagi Reykjavíkur, á bloggi sínu um aðkomu forseta Alþýðusambands Íslands að kjaraviðræðum. Ragnar telur minnisblað sem birt er á netsíðunni wikileaks.org sýna að ASÍ hafi haft frumkvæði að því í febrúar á þessu ári að umsömdum launahækkunum yrði frestað. Í minnisblaðinu er getið um að Samtök atvinnulífsins hafi óskað eftir því við ASÍ að fyrirtæki fengju möguleika á sveigjanleika við að efna samningana, meðal annars varðandi tímasetningu hækkana. „Þessu svaraði ASÍ með því að setja fram þá hugmynd að öllum launabreytingum 1. mars yrði frestað til 1. júlí,“ vitnar Ragnar í minnisblað ASÍ. „Þetta staðfestir að hin gríðarlega spenna sem var á milli SA og ASÍ var ekkert nema leikrit þar sem félagarnir Gylfi og Vilhjálmur voru í aðalhlutverkum. Menn stóðu með kaffibolla í hönd og þrömmuðu framhjá upplýstum gluggum, svo sjónvarpsvélarnar myndu örugglega ná að mynda skrípaleikinn,“ skrifar Ragnar. „Það eitt að ASÍ hafi svo átt frumkvæðið að frestun launahækkana er í sjálfu sér kistulagning Alþýðusambandsins.“ Ekki náðist í Gylfa Arnbjörnsson í gærkvöld til að fá viðhorf hans til ásakana Ragnars.- gar
Mest lesið Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Innlent Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Innlent Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Blóðbankinn á leið í Kringluna Innlent Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Innlent Fleiri fréttir Sektaður vegna kýr sem drapst á leið í sláturhús Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Blóðbankinn á leið í Kringluna Nokkuð um hávaðaútköll Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Sjá meira