555 fasteignir í nauðungarsölu í Árborg 14. september 2009 05:00 Umtalsverð aukning hefur orðið á nauðungarsölum í Árborg á þessu ári miðað við síðasta ár. Fréttablaðið/gva
Samtals 199 fasteignir hafa verið seldar í nauðungarsölu hjá sýslumannsembættinu á Selfossi það sem af er þessu ári, að sögn Ólafs Helga Kjartanssonar sýslumanns. Þá eru 355 eignir nú í slíku söluferli. Til samanburðar má geta þess að allt árið í fyrra voru nauðungarsölur á fasteignum 129. „Inni í tölunum fyrir þetta ár er íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði, sumarbústaðir og lóðir,“ segir Ólafur Helgi. Hann bætir við að sumarbústaðalóðirnar vegi nokkuð mikið í heildarfjöldanum. Á dögunum hafi verið seldar 66 lóðir á einum degi. „En það er ljóst að yfir hundrað fasteignir sem eru sumarbústaðir eða híbýli fólks hafa verið seld á árinu.“ Til viðbótar málunum 355 eru 42 nauðungarsölur á bifreiðum og og sex mál í öðru lausafé. Mál sem ekki er búið að ljúka afgreiðslu á eru 403 talsins. Beiðnir um nauðungarsölu það sem af er árinu eru orðnar 973 í umdæminu. Um mánaðamót október-nóvember falla úr gildi lög frá því í vor, sem heimila frestun á nauðungarsölu fasteigna. Spurður um áhrif þessara laga segir Ólafur Helgi þau ekki ýkja mikil í sínu umdæmi, þar sem ekki séu nema 35 mál í frestun. Að óbreyttu fari þau mál aftur af stað í nóvember þaðan sem þau eru nú stödd í ferlinu. „Það kynni kannski að koma á óvart að ekki skuli liggja fyrir fleiri beiðnir um frestun,“ segir Ólafur Helgi. „En í sumum tilvikum kveðst fólk einfaldlega vera búið að gefast upp og hyggist flytja úr landi. Eins og staðan er núna stefnir greinilega í að fleiri málum í skuldauppgjöri en nokkru sinni fyrr ljúki með nauðungarsölum, þar sem eignir eru endanlega seldar. Það er ljóst að miðað við fyrri ár er ástandið mjög alvarlegt.“ Sigríður Eysteinsdóttir hjá sýslumannsembættinu í Reykjavík segir að 139 nauðungarsölur á fasteignum hafi farið fram það sem af er árinu. Á sama tímabili í fyrra voru þær 78 og 161 talsins á öllu árinu. Skráðar nauðungarbeiðnir nú eru 1.377. Þá hafa 275 beiðnir um frestun nauðungarsölu verið samþykktar hjá embættinu. jss@frettabladid.is
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Sammála því að erfitt haust sé í vændum Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira