Dómsgerð nauðgarans skilar sér á morgun Breki Logason skrifar 5. nóvember 2009 18:46
Héraðsdómur Reykjavíkur ætlar í fyrramálið að senda gögn vegna nauðgunarmáls til ríkissaksóknara. Skortur á þeim varð til þess að dæmdum nauðgara og hrotta var sleppt úr varðhaldi í gær. Konan sem varð fyrir árás mannsins lifir í ótta um að rekast á hann á götu. Eugenio Daudo Silva Chipa er þrítugur Portúgali sem hefur verið búsettur hér á landi. Hann var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir hrottafengna nauðgun sem átti sér stað í Hafnarfirði í maí á þessu ári, honum var einnig gert að sæta gæsluvarðhaldi. Það var Ríkissaksóknari sem fór fram á að maðurinn sætti gæsluvarðhaldi þar til Hæstiréttur væri búinn að dæma í málinu. Það var gert á grundvelli almannahagsmuna, og hafði Hæstiréttur þegar fallist á að slíkir hagsmunir væru til staðar, í þessu alvarlega máli. Í gær felldi Hæstiréttur hinsvegar úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurðinn yfir manninum og gengur hann því laus. Ástæðan var sú að svokallaðar dómsgerðir höfðu ekki borist frá Héraðsdómi Reykjavíkur. Maðurinn var hinsvegar settur í farbann. Réttargæslumaður konunnar segir að skiljanlega þyki henni óþægilegt að vita af manninum lausum, enda sé stutt síðan brotið átti sér stað og hún gæti allt eins rekist á hann úti í búð. Sigríður Friðjónsdóttir vararíkissaksóknari sótti málið fyrir Héraðsdómi í sumar. Hún segir afar bagalegt að málið skuli ekki hafa verið sett í forgang, þar sem maðurinn sat í gæsluvarðhaldi. Helgi I. Jónsson, dómsstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur, segir að menn hafi verið meðvitaðir um hvernig málið stæði og um það álag sem er á starfsfólki Héraðsdómsstóls. Hann segir að breyta þurfi reglum þannig að Ríkissaksóknari sjái algjörlega um áfrýjun mála til Hæstaréttar. Hann segir ennfremur að dómsgerðir í málinu verði sendar ríkissaksóknara strax á morgun.
Mest lesið Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Hleypti líklega óvart úr Innlent Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent Pútín lætur sér fátt um finnast Erlent „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Innlent Fleiri fréttir Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Sjá meira