Þekktir fyrir ofbeldisverk hér á landi 12. nóvember 2009 06:00 Mennirnir fimm voru leiddir fyrir dómara í gær, sem féllst á kröfu lögreglustjórans á Suðurnesjum um framlengingu gæsluvarðhalds þeirra.
Menn í hópi fimm Litháa sem enn sitja í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á skipulagðri glæpastarfsemi hér, þar á meðal mansali, eru þekktir að ofbeldisverkum hér á landi. Fimmmenningarnir voru í gær úrskurðaðir í Héraðsdómi Reykjaness í áframhaldandi gæsluvarðhald til 2. desember eða í þrjár vikur til viðbótar, að kröfu lögreglustjórans á Suðurnesjum. Sumir mannanna eru tengdir við árás á óeinkennisklæddan lögreglumann sem var við fíkniefnaeftirlit á Laugavegi í janúar 2008. Þá veittist hópur manna að honum. Hann var ítrekað sleginn, meðal annars í höfuðið, og sparkað í höfuð hans að minnsta kosti tvisvar eftir að hann var felldur í götuna. Við þetta hlaut lögreglumaðurinn heilahristing og sár víðs vegar á líkamanum. Þá tengjast sumir þeirra sem inni sitja hrottalegri líkamsárás í húsi við Grettisgötu í byrjun júní. Sá sem ráðist var á hlaut lífshættulega áverka af árásinni, sem stóð yfir heila nótt. Hann þurfti að vera um skeið í öndunarvél. Þriðja líkamsárásin þar sem sumir fimmmenninganna koma við sögu var í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík, einnig í júní. Þá var ráðist á mann og hann illa leikinn. Hann hlaut brot í andliti og marga langa og gapandi skurði á höfði. Auk þess var hann með ýmiss konar áverka á höfði, brjóstkassa og útlimum. Gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum var í gær framlengt um þrjár vikur, eins og áður sagði. Þeir hafa kært úrskurðinn til Hæstaréttar. Íslendingi sem setið hefur í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu, var hins vegar sleppt, þar sem ekki var gerð krafa um framlengingu yfir honum. Hann hafði haft ýmis tengsl við fimmmenningana. Meðal annars höfðu þrír þeirra unnið hjá fyrirtæki sem hann rekur. Upphaf þessarar umfangsmiklu rannsóknar má rekja til þess er nítján ára litháísk stúlka kom hingað til lands með flugi frá Varsjá í Póllandi fyrir nokkrum vikum. Hún trylltist á leiðinni í vélinni og var handtekin við komuna til landsins. Grunur vaknaði um að hún hefði verið flutt til landsins sem fórnarlamb mansals og fóru fram handtökur í framhaldi af því. Rannsókn lögreglu hefur undið umtalsvert upp á sig og teygir nú anga sína víða.
Mest lesið Skotmennirnir feðgar Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Innlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Innlent Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð Innlent Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Innlent Rabbíni drepinn í árásinni Erlent Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli Innlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Fleiri fréttir Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli 270 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Ástandið á bráðamóttökunni sýni viðkæmni kerfisins Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Hryðjuverkaárás í Ástralíu og ástand í heilbrigðiskerfinu Sanna segir frá nýju framboði Dyraverðir handteknir vegna líkamsárásar Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Sjá meira