Sjómannaafslátturinn ekki til tals við fjárlagagerðina 12. nóvember 2009 03:45 Guðbjartur Hannesson.
Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður fjárlaganefndar, segir að afnám sjómannaafsláttar hafi ekki komið til umræðu í fjárlagavinnu fyrir árið 2010. Þeirri hugmynd hefur verið fleygt oftar en einu sinni að undanförnu að eðlilegt væri að létta útgjöldum, sem námu 1,1 milljarði í fyrra, af ríkissjóði með afnámi eða tilfærslu sjómannaafsláttar. Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna og varaformaður fjárlaganefndar, gerði svo í byrjun september. Stefán Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Bandalags háskólamanna, gerir slíkt hið sama. Stefán segir það með öllu ástæðulaust, og í raun fráleitt, að ríkið sé að niðurgreiða launakostnað útgerðarinnar. Sérstaklega hljóti menn að líta til þessa þegar niðurskurðarhnífurinn er á lofti um allt samfélagið og laun séu lækkuð á almenna markaðnum jafnt sem hjá ríkinu. „Þetta er einfaldlega spurning um skattalagabreytingu. Þetta er svipuð upphæð og verið er að skera niður hjá Fæðingarorlofsjóði og menn eru að eltast við miklu lægri upphæðir en þetta í fjárlagavinnunni." Stefán telur það einnig koma til greina að tekjutengja sjómannaafsláttinn eins og hverjar aðrar bætur. „Þá myndi greiðsla afsláttarins lækka í hlutfalli við tekjur. Það verður jú að hafa hugfast að tekjur sjómanna eru misjafnlega góðar." Guðbjartur Hannesson bendir á að sjómannaafslátturinn sé kjarasamningsbundin réttindi og ljóst að útgerðarmenn verði að taka á sig greiðslu sjómannaafsláttar verði hann færður frá ríkinu. „Þetta var upphaflega frágangur kjarasamnings þar sem ríkið lagði til vissa upphæð til að liðka fyrir samningum. Ef menn ætla að taka þetta út verður útgerðin að taka þetta á sig." Það er kunnara en frá þurfi að segja að útgerðarmenn og sjómenn hafa aftekið með öllu að hróflað verði við sjómannaafslættinum í þeirri mynd sem hann er. Útgerðarmenn eru ekki til viðtals um að taka á sig kostnaðinn og sjómenn hafa sagt fráleitt að stjórnvöld hafi bein afskipti af kjörum einnar stéttar með þessum hætti. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir ekki koma til greina að breyta sjómannaafslættinum. Hugmyndin hafi lauslega verið rædd í hans eyru en „aldrei verið sett niður á blað með formlegum hætti". svavar@frettabladid.isVilhjálmur EgilssonStefán Aðalsteinssoná veiðum Sjómannaafsláttur kom til árið 1954. Skattaívilnunin átti að hvetja menn til að fara til sjós. Afslátturinn hefur alltaf verið umdeildur.fréttablaðið/jse
Mest lesið Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Yfirheyra bandamenn sína í NATO Erlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Fleiri fréttir Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Sjá meira