Fjórum fyrirtækjum bannað að selja ís 23. nóvember 2009 15:18 Mynd/Rósa J.
Niðurstöður rannsókna á örverufræðilegum gæðum íss úr vél bendir til að umgengni við ísvélar og ísblöndur í Reykjavík fari batnandi enda færri fyrirtæki með ófullnægjandi niðurstöður vegna kólígerla. Ný rannsókn sýnir að öðru leyti svipaðar niðurstöður og tvö síðastliðin ár. Tímabundinni sölustöðvun á ís úr vél var beitt hjá þremur fyrirtækjum í sumar og einu í haust. Þetta kemur fram í frétt á vef umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar. Þar segir að Matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hefur undanfarin ár kannað örverufræðileg gæði íss úr vél á sölustöðum í Reykjavík. Alls voru tekin 73 íssýni á 49 sölustöðum í Reykjavík frá maí til júlí í sumar. Heilbrigðisfulltrúar fóru í september og október í eftirfylgni til þeirra fyrirtækja sem höfðu verið með ófullnægjandi niðurstöður tvisvar eða oftar um sumarið og ný sýni tekin. Aðbúnaður á sölustöðum var einnig kannaður, ýmis atriði varðandi ísvélarnar athuguð og hitastig mælt. Niðurstöður í fyrstu sýnatöku núna í sumar sýndu að örverufræðileg gæði íss úr vél voru fullnægjandi hjá 21 af 49 sölustöðum í Reykjavík eða hjá 42% fyrirtækja. Niðurstöður voru ófullnægjandi hjá 15 eða 31% fyrirtækja og 13 fyrirtæki eða 27% fengu athugasemd eftir fyrstu sýnatöku. Örverufræðileg gæði íss úr vél voru komin í gott horf eftir aðra sýnatöku hjá flestum fyrirtækjum. Tímabundinni sölustöðvun á ís úr vél var beitt hjá fjórum fyrirtækjum, þremur í sumar og einu í haust. Berglind Guðmundsdóttir, heilbrigðisfulltrúi, segir að í ár hafi heildargerlafjöldi verið algengasta ástæða þess að sýni stóðust ekki kröfur um örverufræðileg gæði. Undanfarin ár hafi fjöldi kólígerla hins vegar verið helsta ástæða ófullnægjandi niðurstaðna. Berglind segir að hitastig í ísvél og þrif á vélinni hafi mest áhrif á heildargerlafjölda.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Fleiri fréttir Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Sjá meira