Umfjöllun: Þriðji sigur Eyjamanna í röð í Pepsi-deildinni Ellert Scheving skrifar 9. ágúst 2009 18:00 Eyjamaðurinn Matt Garner. Mynd/Stefán
Vestmannaeyjar skörtuðu sínu fegursta þegar Eyjamenn tóku á móti Fjölni í afar mikilvægum botnslag í kvöld. Leikurinn var ekki ýkja fallegur en endaði 3-1 fyrir ÍBV. Leikurinn byrjaði með miklum látum og ljóst að það var mikið í húfi en það voru Fjölnismenn sem komust yfir eftir aðeins átta mínútur. Magnús Ingi Einarsson átti góða fyrirgjöf inn á teig ÍBV og þar börðust menn þangað til að boltinn datt fyrir fætur Andra Vals Ívarssonar sem skoraði af stuttu færi. Eyjamenn voru ekki á þeim buxunum að gefast upp og jöfnuðu leikinn aðeins fjórum mínútum síðar. Ajay Smith fékk boltann út á kant, lagði boltann út á Pétur Runólfsson sem átti góða fyrirgjöf á fjærstöng þar kom Viðar Örn Kjartansson á mikilli ferð og skallaði boltann í netið. Eyjamenn létu ekki þar við sitja og komust yfir á 22.mínútu. Tonny Mawejje skaut á markið en skotið var varið af varnarmanni Fjölnis en Andri Ólafsson, eins og gammur, var vel vakandi og potaði frákastinu í netið. Rétt um tíu mínútum fyrir hálfleik átti Tómas Leifsson magnað skot sem Albert Sævarsson, markvörður ÍBV, mátti hafa sig allann við að verja. Seinni hálfleikurinn var ekki mikið fyrir augað en Eyjamenn duttu mikið niður á völlinn, Fjölnismenn nýttu sér það og náðu algerum yfirvöldum á vellinum. Eyjamenn sýndu ekkert í seinni hálfleik og Fjölnismenn náðu skapa sér aragrúa færum en nýttu þau ekki. Það kom því upp úr þurru að Eyjamenn skoruðu þriðja markið en gott var það. Á 79.mínútu fékk Gauti Þorvarðarson boltann á vinstri kantinum og sendi boltann fyrir á Tonny Mawejje sem tók hann á kassann og þrumaði honum í netið. Eftir það leystist leikurinn upp í algera vitleysu sem endaði með því að Andrew Mwesigwa leikmaður ÍBV og Andri Steinn Birgisson fengu báðir að líta sitt annað gula spjald og því reisupassann. Eyjamenn unnu því sinn þriðja leik í röð en Fjölnismenn eiga fyrir höndum verðugt verkefni ætli þeir að halda sér í deildinni. ÍBV-Fjölnir 3-1 0-1 Andri Valur Ívarsson (8.) 1-1 Viðar Örn Kjartansson (12.) 2-1 Andri Ólafsson (22.) 3-1 Tonny Mawejje (79.) Hásteinsvöllur: Vestmannaeyjar. Áhorfendur: 686 Dómari: Eyjólfur Magnús Kristinsson (4) Skot (á mark): 13-14 (8-6) Varin skot: Albert Sævarsson 5 - Hrafn 4 Horn: 4-6 Aukaspyrnur fengnar: 15-17 Rangstöður: 2-3 ÍBV (4-4-2) Albert Sævarsson 6 Þórarinn Ingi Valdimarsson 5 Andrew Mwesigwa 5 Eiður Aron Sigurbjörnsson 5 Pétur Runólfsson 5 (76., Bjarni Rúnar Einarsson ) Tonny Mawejje 5 Andri Ólafsson 6 Yngvi Borgþórsson 5 Arnór Eyvar Ólafsson 5 Viðar Örn Kjartansson 5 (63., Augustine Nsumba 5) Ajay Leicht Smith 6 (71., Gauti Þorvarðarson -) Fjölnir (5-3-2) Hrafn Davíðsson 6 Gunnar Valur Gunnarsson 5 Ólafur Páll Johnson 5 Magnús Ingi Einarsson 5 (83., Guðmundur Guðmundsson -) Jónas Grani Garðarsson 6Tómas Leifsson 7 - Maður leiksins - Andri Steinn Birgisson 4 Illugi Gunnarsson 6 (68., Kristinn Sigurðsson 5) Ágúst Þór Ágústsson 5 Marinko Skarinic 5 Andri Valur Ívarsson 5 (68., Aron Jóhansson 5)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Fótbolti Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Enski boltinn Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Handbolti Fleiri fréttir Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina Sjá meira