Heimir: Úrslitin gefa ekki rétta mynd af leiknum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. maí 2009 17:16 Heimir Guðjónsson, þjálfari FH. Mynd/Vilhelm
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, segir að 5-1 sigur sinna manna gefi ekki rétta mynd af leiknum gegn Stjörnunni í Kaplakrika í dag. „Nei, það fannst mér ekki. Við vorum örlítið ofan á í fyrri hálfleik þar sem við sköpuðum okkur fleiri færi en þeir. Við náðum svo að komast í 2-0 snemma í síðari hálfleik en gerðum svo smá mistök sem þeir nýttu sér. En sem betur fer náðum við að klára leikinn." „Stjarnan er gríðarlega vel skipulagt og gott lið. Það er ekki að ástæðulausu að þeir eru búnir að vinna fyrstu þrjá leiki sína. Þetta var því erfiður leikur fyrir okkur og var ég aldrei í rónni með þetta." FH skoraði fyrsta markið í leiknum og er það í fyrsta sinn í vor sem það gerist. „Það var kominn tími á það," sagði Heimir léttur í bragði. Athygli vakti að þeir Matthías Guðmundsson og Tryggvi Guðmundsson voru settir á bekkinn í dag. Í þeirra stað komu þeir Björn Daníel Sverrisson og Tommy Nielsen inn í liðið. „Mér fannst þeir sem komu inn á móti Breiðabliki og hjálpuðu okkur að vinna þann leik eiga skilið að fá tækifærið í dag. Þeir stóðu sig vel." Ásgeir Gunnar Ásgeirsson og Guðmundur Sævarsson meiddust lítillega í dag og þurftu að fara af velli. Heimir á þó ekki von á því að þeir verði lengi frá og býst við þeim klárum í næsta leik. „Það er gott að vera með breiðan hóp enda margir leikir á skömmum tíma nú. Freyr Bjarnason er kominn aftur á stað og því góðar líkur á að allir nema Dennis (Siim) verði heilir fyrir næsta leik."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Ágætis próf fyrir okkur að fá svona rassskellingu“ Íslenski boltinn Þjálfari Patriots í leynilegu ástarsambandi með blaðamanni í mörg ár Sport Stjörnurnar mættu með gufupotta til að hita takkaskóna Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Íslenski boltinn Ítalía myndi ekki þiggja boðsmiða á HM Fótbolti „Eigum að ganga gjörsamlega frá þeim“ Íslenski boltinn Talar stöðugt við Kristófer Acox: „Hræddur við að verjast mér“ Körfubolti „Fólk má hafa sínar skoðanir“ Íslenski boltinn Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Enski boltinn Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir Sló met Eiðs Smára Öll mörkin í Bestu: Hetjustund Óskars, Valsarar í stuði og tvö draumamörk „Eigum að ganga gjörsamlega frá þeim“ „Fólk má hafa sínar skoðanir“ „Ágætis próf fyrir okkur að fá svona rassskellingu“ „Geðveikt að fá fulla Þórsstúku á nýjum velli“ Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Valsmenn gengu frá FH-ingum í fyrri Þór Ak. - Fram 1-0 | Aron Birkir hélt markinu hreinu í vígsluleiknum Aron pirraður: „Algjör óþarfi“ „Tölum saman eftir sex mánuði“ „Við litum út eins og þriðji flokkur“ ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Mark ársins í Bestu deildinni komið? Besta-spá kvenna 2026: Sjónarmunur á sterkum liðum ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans „Ég er ekkert órólegur“ „Það er eiginlega óskiljanlegt“ Keflavík 0-0 Breiðablik | Litlaust í fyrsta grasleiknum Markaskorari sem svífur framhjá leikmönnum HK, Grótta, Fylkir og Þróttur á leið í Bestu deildirnar? Valur keypti Samúel Kára fyrir mikið fé Besta-spá kvenna 2026: Baráttan á botninum Valsmenn opna veskið til að landa Samúel Kára Valsmönnum fjölgar í Mosfellsbæ Breiðabliki spáð titli en Val neðri helmingi Sjálfstæðisflokkur langstærstur í Bestu deild kvenna Svona var fundurinn fyrir Bestu deild kvenna KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Spilað inni á Akranesi á miðvikudaginn Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Íslenski boltinn