Feginn að fjölmiðlastormi sé lokið 20. september 2009 12:00 SKúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri og Jón Jósef Bjarnason, tölvunarfræðingur, takast í hendur. Mynd/larahanna.blog.is „
Ríkisskattstjóri hefur áhuga á að keyra þetta forrit," segir tölvunarfræðingurinn Jón Jósef Bjarnason sem fann upp rel8 forritið sem sýnir krosseignatengsl á Íslandi á séstaklega skýran hátt. Jón Jósef kynnti hugmynd sína í fjölmiðlum í síðustu viku en það hefur ekki gengið þrautalaust fyrir sig. Ríkisskattstjóri sendi út harðorða yfirlýsingu í vikunni þar sem kom fram að Jón Jósef væri óheimilt að nota gagnagrunn fyrirtækjaskrár til þess að keyra forritið fyrr en álit Persónuverndar lægi fyrir. Þá kom einnig fram í tilkynningu ríkisskattstjóra að Jón hefði ekki skilað inn ársreikningum fyrirtækis síns í þrjú ár. Sjálfur svaraði Jón fullum hálsi og sakaði skattstjórann um mannorðsmorð. Persónuvernd úrskurðaði í lok vikunnar að Jóni væri heimilt að nota og sýna upplýsingarnar. Í gær sendi svo ríkisskattstjóri út tilkynningu þar sem kom fram að ekkert væri til fyrirstöðu að Jón hefði aðgang að fyrirtækjaskrá. Það var síðan í gærkvöldi sem Jón og Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri, hittust fyrir tilstilli hóps áhugamanna um upplýstara samfélag með bloggarann Láru Hönnu Einarsdóttur í farabroddi. Þar tókust þeir í hendur. „Við höfum í raun talað sama máli," segir Jón Jósef um ágreining þeirra og bætir við að Skúli hafi sagst í gærkvöldi vera opinn fyrir að nýta forrit Jóns. Skúli sagði honum að embættið hafi viljað hafa vaðið fyrir neðan sig varðandi aðganginn að fyrirtækjaskrá. Að sögn Jóns er mikill áhugi mismunandi hópa í samfélaginu til þess að nýta tækni. Meðal annars er unnið að því að nota sama kerfið til þess að varpa ljósi á kvóta, hverjir fá hann og hvernig þeir einstaklingar tengjast svo aftur viðskiptalífinu. Þá er einnig verið að skoða möguleikann á að nota forritið í nýstárlega áhættugreiningu að sögn Jóns. Spurður hvað taki næst við, nú þegar ekkert er til fyrirstöðu að koma kerfinu á markað, svarar Jón einfaldlega: „Næst hjá mér er að fara úr opinberri umræðu og aftur í tölvuna þar sem ég á heima." Jón Jósef er brugðið eftir óvæntan og gríðarlegan áhuga fjölmiðla á honum og deilum hans við ríkisskattstjóra. „Þetta var hræðilegt," segir hann bætir við að hann sé guðslifandi feginn að þessu sé lokið. Hann segir þetta hafa verið erfiðan tíma og dáist að mönnum sem geta staðið undir slíku álagi. Nú ætlar Jón að koma kerfi sínu á markað. Næsta skref er að kynna það erlendis.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira