Óvíst hvort bóluefnið dugi Sólveig Bergmann skrifar 23. september 2009 19:55
Óvíst er hvort þeir 300 þúsund skammtar, af bóluefni gegn svínaflensu, sem hafa verið pantaðir muni duga til að bólusetja alla þjóðina líkt og stefnt var að. Þá er enn á huldu hvenær efnið berst til landsins. Hjá Embætti sóttvarnarlæknis er beðið í ofvæni eftir bóluefninu. Vonast er til að fyrsti skammtuinn berist í október og afgangurinn fyrir áramót. Niðurstöður úr rannsóknum á efninu liggja enn ekki fyrir, en framleiðslan byggir á bóluefni fyrir fuglaflensu sem Evrópska Lyfjastofnun hefur lagt blessun sína yfir. „Það er bóluefni nákvæmlega eins og þetta bóluefni nema hvað það er önnur veira í því. Þannig að það er engin ástæða til að ætla annað en að þetta bóluefni sé virkt og öruggt," segir Þórólfur Guðnason, yfirlæknir á Sóttvarnarsviði Landlæknis. Annar hver maður virðist hafa fengið flensulík einkenni undanfarið, týpískar haustflensur með hita, hósti, höfuðverk og meltingarkveisu. Þetta eru jú líka einkenni svínaflensu en það er algerlega á huldu hveru margir Íslendingar hafa sýkst af henni. Fjöldi staðfestr tilfella segja okkur ekki mikið enda hafa læknar dregið úr sýnatökum. En ef miðað er við að fyrir hvert greint tilfelli séu 20 ógreind eru tilfellin um 4000. Þrátt fyrir að fólk gruni að það hafi sýktst af svínaflensu vill sóttvarnarlæknir samt sem áður að það láti bólusetja sig. Það á sérstaklega við þá sem eru með undirliggjandi sjúkdóma og barnshafandi konur sem verða í forgangshópi þegar bóluefnið loks berst. Svo eru það hinir sem ekki tilheyra forgangshópi og óttast að veikjast illilega af svínaflensu áður en röðin kemur að þeim. Þórólfur segir að þeir 300 þúsund skammtar sem von er á dugi ef það nægi að bólusetja einu sinni. Þá ætti að vera hægt að bólusetja alla þjóðina. Ef það þurfi að bólusetja tvisvar þá verði reynt að bólusetja þá sem fara illa út úr sýkingunni en síður þurfi að óttast hina. Þórólfur minnir jafnframt á að til séu veirulyf sem virki á þessa veiru til að meðhöndla ef einstaklingar sýkist
Mest lesið Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Erlent Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Innlent Fleiri fréttir Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Sjá meira