Innlent

Leigubílaröðin færist í Hafnarstræti

Leigubílaröðin á næturna mun framvegis vera á þessum stað.
Leigubílaröðin á næturna mun framvegis vera á þessum stað.
Biðskýli fyrir þá sem vilja ná leigubíl eftir miðnætti um helgar í miðborginni hefur verið flutt norður fyrir Lækjartorg og er nánar tiltekið við Hafnarstræti 22. Nú í vikunni verður skýlið merkt með áberandi hætti þannig að enginn þurfi að velkjast i vafa um að hann sé á rétta staðnum.

Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar. Þá segir að á þeim tímum sem leigubílar anna eftirspurn munu þeir geta beðið á bílastæðinu gengt biskýlinu og rennt að því þegar viðskiptavinir koma.

„Stillingu umferðarljósa við Lækjargötu verður breytt til að greiða fyrir umferð leigubíla frá bílastæðinu. Nýja staðsetningin var ákveðin í samráði við samtök leigubílstjóra og verða næstu 3 - 4 mánuðir reynslutími fyrir nýju staðsetninguna. Eldri staðsetning biðskýlisins við Mæðragarðinn skapaði mikið áreiti og ónæði fyrir íbúa í nágrenninu."


Tengdar fréttir

Leigubílstjórar ósáttir við nýja leigubílastæðið í Hafnarstræti

Leigubílstjórar eru margir hverjir ósáttir við þær breytingar sem gerðar hafa verið í miðborginni en leigubílaskýlið sem staðið hefur við Lækjargötu hefur verið flutt inn í Hafnarstræti. Jóhann Sigfússon formaður Bifreiðastjórafélagsins Átaks segist ekki vita um einn einasta leigubílstjóra sem sé sáttur við breytingarnar enda sé nýja staðsetningin afar slæm. Hann segir að leikubílstjórar muni flestir hunsa nýja stæðið.

Leigubílaskýlið flutt úr Lækjargötunni

Til stendur að flytja leigubílaskýlið sem staðið hefur við Lækjargötu í Reykjavík yfir í Hafnarstræti og mun það standa fyrir framan hús nr. 16. Samkvæmt upplýsingum frá hverfisstöð Reykjavíkurborgar við Njarðargötu er gert ráð fyrir að nokkursskonar samgöngumiðstöð verði á planinu við Hafnarstræti og þótti því eðlilegt að flytja skýlið. Það er rétt að skemmtanaglaðir Reykvíkingar hafi þetta í huga í framtíðinni því líkur eru á að þeir grípi í tómt ef þeir ætla sér að freista þess að ná í leigubíl í Lækjargötunni í framtíðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×