Sport

Umboðsmaður: Vermaelen fer til Arsenal

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Thomas Vermaelen, til vinstri, í leik með belgíska landsliðinu.
Thomas Vermaelen, til vinstri, í leik með belgíska landsliðinu. Nordic Photos / AFP

Umboðsmaður belgíska varnarmannsins Thomas Vermaelen er þess fullviss að leikmaðurinn muni senn ganga formlega til liðs við Arsenal.

Vermaelen er á mála hjá Ajax og hefur verið sterklega orðaður við Arsenal. Ajax er sagt hafa samþykkt boð frá Lundúnarfélaginu upp á tíu milljónir punda.

„Þetta er bara spurning um hvenær en ekki hvort," sagði umboðsmaður kappans í samtali við hollenska fjölmiðla.

Núverandi samningur Vermaelen við Ajax gildir í þrjú ár til viðbótar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×