Greina ekki verra viðmót í kreppunni 22. september 2009 12:25
Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, segir nýlega rannsókn sýna að innflytjendum hér á landi hefur gengið illa að undanförnu að fá vinnu og að þeir óttist framtíðina batni efnahagsástandið ekki á næstunni. Mikill meirihluti innflytjenda telja viðmót til sín ekki hafa breyst eftir að kreppan skall á. Rauði krossinn stendur fyrir málþingi á eftir hádegi um stöðu innflytjenda á erfiðleikatímum undir yfirskriftinni: „Eru innflytjendur afgangsstærð?" Kristján segir að málþinginu muni meðal annars Hallfríður Þórarinsdóttir forstöðumaður MIRRA, Miðstöðvar InnflytjendaRannsókna ReykjavíkurAkademíunni, flytja erindi um nýlega rannsókn þar sem rætt var við 57 innflytjendur af mismunandi uppruna búsettir í öllum landshlutum. „Mikill meirihluti viðmælenda taldi sig greina lítinn sem engan mun á viðmóti til þeirra eftir að kreppan skall á og sumir töldu jafnvel of snemmt að dæma um slíkt," segir Kristján en bendir á að þó viðmælendurnir hafi ekki upplifað persónulega neinar breytingar á viðmóti Íslendinga hefðu þeir engu að síður skynjað breytingar til hins verra í umræðunni í samfélaginu sem sneri að fólki af erlendum uppruna. Innflytjendur óttist því framhaldið fari efnahagsástandið ekki að batna. Kristján segir nokkra viðmælendur í rannsókninni hafa sagt nær vonlaust að fá vinnu því Íslendingar gengju fyrir í þau störf sem í boði eru. „Hjá viðmælendum frá löndum utan ESB mátti greina mikinn ótta við að verða vísað úr landi við atvinnumissi þar sem réttur þeirra til þess að dvelja í landinu er takmarkaður og enga félagslega aðstoð er að hafa fyrir það." Kristján segir mikilvægt að þörfum allra sem búa hér á landi sé sinnt óháð því hvort þeir séu innfæddir eða innflytjendur. Málþingið hefst klukkan 13:30 og fer í Þjóðminjasafninu við Suðurgötu. Auk Kristjáns og Hallfríðar flytja eftirtaldir erindi: Margrét Steinarsdóttir framkvæmdastjóri Alþjóðahúss, Anna Kristinsdóttir mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar, Sigríður Herdís Pálsdóttir verkefnisstjóri hjá Rauða krossi Íslands og María Elvira Mendez Pinedo lögfræðingur og dósent við Háskóla Íslands.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira