Skref Norðmanna gæti haft jákvæð áhrif fyrir Íslendinga 22. september 2009 19:17
Heimsókn olíumálaráðherra Noregs til Jan Mayen í dag er talin pólitísk yfirlýsing um að Norðmenn stefni á olíuleit á norska hluta Jan Mayen-hryggjarins. Málið gæti haft mikla efnahagsþýðingu fyrir Ísland í framtíðinni enda eiga Íslendingar 25 prósent nýtingarrétt á olíunni Noregsmegin miðlínunnar.Olíuleit á Jan Mayen hryggnum er mjög umdeild í Noregi. Olíumálaráðherrann Terje Riis Johansen er hins vegar talinn senda skýr skilaboð um hvert ríkisstjórnin vilji stefna með heimsókn til Jan Mayen í dag.Þórarinn Sveinn Arnarson, verkefnistjóri olíuleitar hjá Orkustofnun, telur heimsóknina auka líkur á að Norðmenn hefji þarna olíuleit. Heimsóknin sé pólitísk yfirlýsing.Fyrir íslenska hagsmuni gæti þetta haft mikla þýðingu því samkvæmt 28 ára gömlu samkomulagi þjóðanna eiga Íslendingar 25 prósent rétt á leyfum á stórum hluta þess svæðis sem er innan norsku lögsögunnar, og öfugt, en réttur Íslands nær þó yfir mun stærra svæði Noregsmegin.Áform Norðmanna þýða væntanlega auknar rannsóknir á næstu árum sem gagnast munu Íslendingum við mat á Drekasvæðinu. Þá gætu Íslendingar einnig hagnast á auknum áhuga sem heimsókn ráðherrans er talin geta vakið á svæðinu enda er jarðfræðin sú sama beggja vegna miðlínunnar. "Ef til dæmis fyndist olía Noregsmegin myndi það að sjálfsögðu hafa gífurlega jákvæð áhrif á okkar svæði," segir Þórarinn.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira