Vildi gera mynd á Íslandi 22. september 2009 06:00 Milos Forman hefur á ferli sínum hlotið flest þau verðlaun sem kvikmyndagerðarfólki getur hlotnast. Hann ræddi við blaðamenn á fundi á Hótel Plaza í gær. Fréttablaðið/stefán
Tékkneski leikstjórinn Milos Forman er staddur hér á landi á vegum RIFF, alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík. Á blaðamannafundi í gærdag upplýsti Forman að hann hafi ætlað að gera kvikmynd á Íslandi. Milos Forman hlaut heiðursverðlaun RIFF fyrir æviframlag sitt til kvikmyndalistarinnar, en hann er einn fjögurra núlifandi leikstjóra sem tvívegis hafa hlotið Óskarsverðlaunin sem besti leikstjórinn, þau hlaut hann fyrir kvikmyndirnar Gaukshreiðrið og Amadeus. Þrjár kvikmyndir Formans verða sýndar á kvikmyndahátíðinni í ár. Forman kom til landsins á sunnudaginn og mun þetta vera í fyrsta sinn sem hann sækir Ísland heim. „Ég varð heillaður af landslaginu strax á leið frá flugvellinum. Íslendingum finnst landslagið ef til vill ómerkilegt en mér fannst þetta alveg einstakt,“ sagði hann á blaðamannafundi sem haldinn var á Hótel Plaza í gær. Kvikmyndir Milosar Formans fjalla gjarnan um persónur sem hafa orðið undir í samfélaginu en berjast gegn kúgun og yfirvaldi. Hann segir að æskuárin í fyrrum Tékkóslóvakíu hafi haft mikil áhrif á persónusköpun sína. Foreldrar hans létust í útrýmingarbúðum nasista og sjálfur flúði hann til Bandaríkjanna á tímum kommúnistastjórnarinnar. „Ég gat ekki snúið heim því ég vissi að ef ég færi heim aftur þá fengi ég ekki að gera kvikmyndir. Síðasta kvikmyndin sem ég hafði gert heima, Veisla slökkviliðsmannanna, hafði verið bönnuð af stjórninni þannig að ég vissi að það var engin von fyrir mig þar.“ Forman segist ekki hafa fylgst sérstaklega með íslenskri kvikmyndagerð undanfarin ár en vonar að hann fái mynddiska með sér heim. „Miðað við þann fjölda kvikmynda sem framleiddar eru hér árlega þá virðist íslensk kvikmyndagerð vera mjög kraftmikil, sérstaklega miðað við fólksfjölda.“ Forman segist hafa viljað gera kvikmynd hér á landi um skákina milli Bobby Fisher og Boris Spassky með þeim sjálfum í aðalhlutverki. „Spassky var tilbúinn til að taka að sér hlutverkið en eftir að hafa rætt við Fisher þá áttaði ég mig á því að hann mundi aldrei láta að stjórn né hafa agann sem þarf til að leika í kvikmynd. Ég ákvað því að hætta við verkefnið.“ Sérstök viðhafnarsýning á Gaukshreiðrinu verður klukkan 20.00 annað kvöld í stóra sal Háskólabíós. Milos Forman mun auk þess svara spurningum áhorfenda að sýningu lokinni. sara@frettabladid.is
Mest lesið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið Fleiri fréttir Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Sjá meira