Þrá og ástríða 12. september 2009 01:00 Fern nevjinsky
Í gær fór fram doktorsvörn við íslensku- og menningardeild hugvísindasviðs við Háskóla Íslands í Hátíðarsal. Fern Nevjinsky varði þá ritgerð sem hún nefnir: Désir et passion dans l'œuvre dramatique de Jóhann Sigurjónsson, eða Þrá og ástríða í leikverkum Jóhanns Sigurjónssonar. Doktorsritgerð þessi var lögð fram samtímis við Háskóla Íslands og Université Paris IV-Sorbonne samkvæmt samstarfssamningi skólanna frá 2003. Hún er rituð á frönsku en henni fylgir ítarlegt ágrip á íslensku. Leiðbeinendur voru prófessor Torfi H. Tulinius og prófessor Marc Auchet. Höfundur var um árabil dósent í sálarfræði við háskólann í Rúðuborg, auk þess sem hún starfaði sem sálgreinir um áratuga skeið. Á miðjum aldri hóf hún nám í norrænum bókmenntum við Sorbonne og er ritgerð þessi lokaáfangi á þeirri leið. Hún nýtir sér umtalsverða sérþekkingu sína á sálgreiningu til að nálgast leikrit Jóhanns Sigurjónssonar á nýstárlegan hátt. Ritgerðin skiptist í átta kafla auk inngangs þar sem greint er frá tilgangi höfundar og aðferðum hans lýst, og lokakafla þar sem helstu niðurstöður hans eru dregnar saman. Um er að ræða ítarlega greiningu á leikverkum Jóhanns með aðferðum sálgreiningar. Megintilgáta doktorsefnisins er sú að þrár persóna Jóhanns Sigurjónssonar leiðir þær út í ástríður, sem opna leiðina fyrir andlegu hruni þeirra með allsherjar afturhvarfi til frumstiga sálarlífsins. Með aðferðum bókmenntafræðinnar, en einnig með skírskotun til skrifa Sigmunds Freud, Jacques Lacan og fjölda annarra höfunda úr röðum sálgreinenda, er farið í gegnum öll leikrit Jóhanns. Athyglinni er einkum beint að þróun persónanna í leikverkunum. Í lokakafla er kastljósinu beint að frægustu leikpersónu Jóhanns, Galdra-Lofti. Doktorsefnið greinir ofan í kjölinn samband Lofts við föður sinn, vin, biskupinn og ástkonurnar tvær, og hvernig þessi tilfinningasambönd tengjast þrá hans eftir þekkingu. Fyrir henni er Loftur eins konar Don Juan þekkingarinnar. Þessi þrá breytist í ástríðu sem ýtir honum fram af ystu nöf og hann dregur veiklaðar sálir með sér í fallinu. Vörnin fór að mestu leyti fram á íslensku. Doktorsefnið sjálft talar íslensku og form varnarinnar miðaðist bæði við hérlendar hefðir og franskar. Andmælendur, auk leiðbeinenda, voru þeir dr. Camille Dumoulié, prófessor við Université Paris XIII - Nanterre og dr. Sveinn Yngvi Egilsson, prófessor við Háskóla Íslands. Heiðursandmælandi var dr. Sveinn Einarsson leikhúsfræðingur. Með ritgerðinni bætist enn við rit sem greina höfundarverk Jóhanns, ævisögu Helge Thorberg og rannsóknarverk Jóns Viðars Jónassonar, Kaktusblómið og nóttin. - pbb
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Lífið Fleiri fréttir Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Sjá meira