Hólmar Örn: Það er mjög þægilegt að koma aftur í þetta lið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júlí 2009 08:00 Hólmar Örn Rúnarsson.
Keflvíkingar eru til alls líklegir í Pepsi-deildinni eftir 1-0 sigur á Fylki í Keflavík. Heimavöllur liðsins hefur þegar skilað 19 stigum í hús og í gær hélt liðið hreinu í fyrsta sinn í langan tíma. Hólmar Örn Rúnarsson meiddist illa í fyrri leiknum á móti Fylki en í gær var það hans mark sem skildi á milli liðanna og skilaði liðinu þremur stigum. „Þetta var allt annað heldur en síðast á móti Fylki enda miklu skemmtilegra að vinna og koma heill út úr þessu," sagði Hólmar Örn Rúnarsson sem skoraði eina markið á 58. mínútu eftir að Guðmundur Steinarsson hafði ógnað skoti inn í teig en missti boltann til hans. „Ég tók bara sjensinn inn í teig, Gummi missir boltann aðeins frá sér og ég stal honum af honum," sagði Hólmar sem var himinlifandi með að hafa náð í öll stigin. „Við erum farnir að halda hreinu sem skiptir okkur miklu máli. Þetta er langt í frá að vera flottasti leikur sem við höfum spilað en það eru skemmtilegustu sigrarnir að fá ekki á sig mark og ná síðan að setja eitt," sagði Hólmar og bætti við: „Fylkir er núna með 23 stig eins og við. Við eigum Val næst þannig að þetta verður hörkubarátta hjá þessum liðum að slást um annað sætið. Þetta er þvílíkt mikilvægur sigur því annars hefði Fylkir verið komið sex stigum yfir okkur og þá hefði verið erfitt að ná þeim aftur," segir Hólmar sem gengur vel að komast aftur af stað eftir meiðslin. „Ég er kannski ekki að hlaupa alveg jafnmikið og ég er vanur en ég fer þetta meira á klókindum. Þetta kemur hægt og bítandi hjá mér," sagði Hólmar sem þarna lék sinn annan leik eftir meiðslin sem héldu honum frá í tvo mánuði. „Það er mjög þægilegt að koma aftur inn í þetta lið. Ég þekki mitt hlutverk vel og ég er ekkert að gera meira heldur en ég get núna," sagði Hólmar.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enski boltinn Fór holu í höggi í beinni í sjónvarpinu Golf Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Enski boltinn Sveindís Jane til bjargar á síðustu stundu Fótbolti Dagskráin: Enski boltinn byrjar og risaleikur í Bestu Sport Japanskur hnefaleikakappi lést eftir bardaga Sport Nunez farinn frá Liverpool Enski boltinn Haaland á skotskónum í sigri Man. City Sport Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Enski boltinn Fleiri fréttir Öll mörk Patricks Pedersen í efstu deild McLagan framlengir við Framara Björgvin Karl: Settið sem kom að sunnan ekki í Bestu deildar klassa Uppgjör: FHL-FH 0-2 | Þolinmæði vann þraut FH gegn FHL Fékk rautt spjald fyrir að toga í hár mótherja Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 2-1 | Heimakonur unnu Reykjavíkurslaginn Galdur orðinn leikmaður KR Á Tryggvi Guðmundsson kannski enn markametið? „Sáum á dómurunum í restina að þeir höfðu eitthvað á samviskunni“ „Ákvað bara að láta vaða“ „Það var góð barátta í okkur og mikil liðsheild“ Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-6 | Ekkert fær Blika stöðvað Uppgjörið: Þór/KA - Valur 1-2 | Mikilvægur sigur gestanna Uppgjör: Stjarnan - Tindastóll 3-0 | Hoppa upp í efri hlutann eftir sannfærandi sigur Fengið nokkur skilaboð eftir skipti frá Val til KR Sjáðu mörkin úr Bestu: Nú er hinn Pedersen bróðirinn farinn að skora líka „Ég var í smá sjokki“ Framari týndi boltanum í miðjum leik og Rikki G var alveg gáttaður Stúkan: Getur KR fallið úr deildinni? „Ég hef aldrei séð Stjörnuna spila svona“ „Ég er mjög þreyttur“ Uppgjörið: Afturelding - Vestri 1-1 | Deila með sér stigunum „Mæli með að dómarar nái þessum hraða með boltann“ Uppgjörið: Fram - Stjarnan 1-1 | Allir ósáttir eftir jafntefli Leiknir selur táning til Serbíu Markametið hans Patricks Pedersen í tölum Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Hansen hamingjusamur í Víkinni næstu árin Tryggvi þurfti að bíða í 257 daga eftir að bæta metið Sjá meira
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti
Slagsmál stuðningsmanna fyrir utan Ölver: „Allir með grímu fyrir andlitið og réðust á okkur“ Fótbolti