Enski boltinn

Hicks: Torres er ómissandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Fernando Torres skoraði 33 mörk á sinni fyrstu leiktíð hjá Liverpool.
Fernando Torres skoraði 33 mörk á sinni fyrstu leiktíð hjá Liverpool. Nordic Photos / Getty Images

Tom Hicks, annar eiganda Liverpool, segir að Fernando Torres sé algjörlega ómissandi í liði félagsins.

Hann segir að þó svo að hann fengi metfé fyrir Torres myndi hann ekki selja. „Við myndum aldrei skoða þann möguleika að selja Fernando Torres, fyrir hvaða pening sem er," sagði Hicks.

„Þessir orðrómar í fjölmiðlum þar sem hann er orðaður við Chelsae er tóm þvæla," bætti hann við.

Sjálfur hefur Torres harðneitað því að hann sé á förum frá Liverpool.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×