Þingmenn allra flokka leggja til málsókn gegn Bretum 16. desember 2008 20:08 Frá Alþingi.
Fimm þingmenn úr öllum flokkum á Alþingi vilja að fé verði veitt til að standa undir kostnaði við málshöfðun gegn breskum stjórnvöldum. Þingmennirnir Sigurður Kári Kristjánsson Sjálfstæðisflokki, Árni Páll Árnason Samfylkingu, Katrín Jakobsdóttir Vinstri grænum, Höskuldur Þórhallsson Framsóknarflokki og Jón Magnússon Frjálslynda flokknum hafa lagt fram sameiginlegt frumvarp þar sem fjármálaráðherra er veitt heimild til að veita fé til að standa undir kostnaði af því að höfða mál gegn breskum stjórnvöldum vegna þess að hryðjuverkalögum var beitt gegn Landsbankanum og greiðslustöðvun beitt gegn dótturfélagi Kaupþings í haust. Nauðsynlegt að fá viðurkennt að Bretar fóru offari Í greinargerð með frumvarpinu segir að allt frá því að bresk stjórnvöld gripu til þessara aðgerða hefur sú skoðun notið mikils stuðnings á Íslandi að höfða ætti mál gegn breskum stjórnvöldum fyrir breskum dómstólum til að freista þess að fá það viðurkennt að með aðgerðum sínum hafi bresk stjórnvöld brotið lög og farið offari gagnvart Íslendingum og íslenskum hagsmunum. Málshöfðunarfrestur að renna út ,,Þetta er ekki síður nauðsynlegt til að sýna fram á með formlegum, táknrænum og afdráttarlausum hætti að Íslendingar sætta sig ekki við að vera beittir hryðjuverkalögum af hálfu annarrar þjóðar. Slíkur málarekstur getur einnig verið æskilegur til að styrkja mögulegar herferðir sem fara þarf í á Bretlandi og víðar til að bæta orðspor Íslands. Brýnt er að leggja þetta frumvarp fram nú vegna þess að fyrir liggur að viðeigandi málshöfðunarfrestir samkvæmt breskum lögum, a.m.k. í máli Kaupþings banka hf., eru að renna út," segir í greinargerðinni. Stjórnvöldum ber að tryggja að mögulegt verði að höfða mál Þingmennirnir telja að löggjafarvaldinu og íslenskum stjórnvöldum beri að gera allt sem í valdi þeirra stendur til að tryggja að mögulegt verði að höfða mál innan málshöfðunarfresta gegn breskum stjórnvöldum vegna þeirra stjórnvaldsaðgerða sem bresk stjórnvöld beittu gagnvart íslensku bönkunum tveimur jafnvel þó svo að kröfuhafar bankanna kjósi að velja ekki þann kost. Helgi Áss samdi frumvarpið með Sigurði Kára Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að það var samið af Sigurði Kára og Helga Áss Grétarssyni, lögfræðingi og sérfræðingi við Lagastofnun Háskóla Íslands.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira