Enski boltinn

Jaaskelainen framlengir við Bolton

NordcPhotos/GettyImages

Finnski markvörðurinn Jussi Jaaskelainen hefur samþykkt að skrifa undir nýjan fjögurra ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Bolton. Sky greindi frá þessu í dag.

Jaaskelainen er samningslaus og hefur fjöldi liða sýnt honum áhuga á undanförnum vikum, en hann virðist staðráðinn í að halda veru sinni áfram hjá Bolton - þar sem hann hefur verið síðan árið 1997.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×