Lífið

Paparassinn ætlar að græða milljónir á Britney

Meðan allt lék í yndi.
Meðan allt lék í yndi.
Þrátt fyrir að Britney Spears virðist löngu búin að gleyma honum ætlar Adnan Ghalib, paparassinn góðkunni, ekki að hverfa svo auðveldlega. Hann segist hafa undir höndum sex heimamyndbönd af poppdívunni, og ætlar að mjólka hverja krónu úr sínum fimmtán mínútum af frægð.

Heimildamaður slúðursíðunnar Showbizspy, sem hefur séð fjögur myndbandanna, segir að Ghalib ætli sér að fá tvær milljónir dollara, eða um 140 milljónir króna fyrir þau.

Í einu þeirra situr Britney á rúmstokknum vafin í handklæði og talar um sig í þriðju persónu, skælandi og hlæjandi til skiptis. Með maskaratauma niður andlitið segir hún „Britney vill lifa, ég er ekki klikkuð. Ég sakna barnanna og ég elskaði Kevin."





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.