Innlent

Lögreglustjóri hefur ekki fengið úrskurð dómsmálaráðherra

Stefán Eiríksson, lögreglustjóri.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki fengið inn á sitt borð úrskurð dómsmálaráðuneytisins um Goldfinger og getur því ekki tjáð sig um hann. Í Fréttablaðinu í dag er greint frá því að lögreglustjóra beri að endurskoða umsögn sína um nektardansstaðinn Goldfinger en á grundvelli neikvæðrar umsagnar lögreglunnar var staðnum neitað um rekstrarleyfi.

Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, sagði í samtali við Vísi að úrskurðurinn hefði ekki borist inn á sitt borð og því gæti hann ekki tjáð sig um hann að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×