Lífið

Madonna byggir sér líkamsræktarstöð

Vandræði á fjármálamörkuðum víða um heim virðast ekki koma mikið við buddunar hennar Madonnu. Stjarnan var að fjárfesta í húsinu sem stendur við hliðina á heimili hennar í í miðborg Lundúna.

Madonna borgaði litlar sex milljónir punda, eða um 775 milljónir íslenskra króna fyrir herlegheitin. Hún ætlar hins vegar ekki að nota húsið sem gestahús eða drýgja tekjurnar með því að fá sér leigjendur, heldur hefur hún breytt húsinu í fullkomna líkamsræktarstöð.

Upphaflega stóð til að tengja húsin tvö saman en þar sem skipulagsyfirvöld í Lundúnum voru ekki á þeim buxunum að leyfa henni það þá verður hún nú að gera sér að góðu að labba heila tuttugu metra til þess að komast í ræktina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.