Lífið

Þorgrímur og Nína Dögg sigruðu í stigahlaupinu í Smáratorgi

Þorgrímur Þráinsson sigraði í karlaflokki.
Þorgrímur Þráinsson sigraði í karlaflokki.

World Class efndi til hlaupakeppni í nýja turninum á Smáratorgi síðdegis í dag þar sem hlaupið var upp 15 hæðir til styrktar Fjölsmiðjunni. Tilefnið var opnun nýrrar 700 fm heilsuræktarstöðvar á 15. hæð í turninum en stöðin mun hefja starfsemi sína á mánudaginn.

„World Class og Landsbankinn hétu á keppendur að hlaupa upp hæðirnar fimmtán, sem telja 314 þrep, og lögðu til áheitafé sem rennur óskipt til Fjölsmiðjunnar. Í kvennaflokki kepptu Skrítla (Hrefna Björk Hallgrímsdóttir) og Lúsí (Katrín Þorvaldsdóttir), Nína Dögg Filippusdóttir leikkona og Ellý Ármanns, sjónvarpskona," segir í tilkynningu frá aðstandendum.

Í kvennaflokki sigraði leikkonan Nína Dögg en hún hljóp á tímanum 1:50,72. „Næst á eftir henni varð Skrítla en hún hljóp á tímanum 2:18,97."

 

Í karlaflokki kepptu Jói Fel bakarameistari, Þorgrímur Þráinsson rithöfundur, Finnbogi Kristinsson, deildarstjóri í Fjölsmiðjunni, og Guðmundur Hrafnkelsson, fyrrum landsliðsmaður í handbolta og starfsmaður Fjölsmiðjunnar. „Með sigur af hólmi fór Þorgrímur Þráinsson en hann hljóp á tímanum 1:11,53. Fast á hæla hans kom Jói Fel en hann hljóp á tímanum 1:27."

 

Tímaverðir voru einkaþjálfararnir Ívar Guðmundsson og Arnar Grant.

„Með sigrinum tókst Nínu og Þorgrími að tryggja sér árskort í heilsuræktarstöð World Class en þar með er ekki öll sagan sögð því sigurvegararnir geta misst kortin í hendurnar á öðrum sem bæta tíma þeirra, þar sem framhald verður á hlaupakeppninni."

 

„Fyrsta laugardag í hverjum mánuði gefst öllum sem áhuga hafa á að hlaupa upp hæðirnar fimmtán að bæta tímann og vinna þar með til sín árskortin. Sá sem þannig missir kortið úr höndunum hefur þó alltaf tækifæri til að vinna það á nýjan leik með því að bæta nýjasta tímann. Skráning í laugardagshlaupin fer fram í World Class í síma 517 0609."

 

 

Fjölsmiðjan er vinnustaður fyrir ungt fólk á aldrinum 16-24 ára sem hefur hætt námi og ekki náð að fóta sig á vinnumarkaði. Þar gefst því tækifæri til að þjálfa sig fyrir almennan vinnumarkað eða áframhaldandi nám.

Þorbjörn Jensson, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar, segir Fjölsmiðjuna eiga sér danska fyrirmynd, Produktionsskolerne, sem hafi gefist vel. „Í Fjölsmiðjunni er reynt að finna styrkleika hvers og eins og virkja hann. Við vinnum með einstaklinginn eins og hann er og finnum leiðir til að efla sjálfstraust hans," segir Þorbjörn og bætir því við að styrkurinn komi að góðum notum í ýmiss konar fræðslustarfi innan Fjölsmiðjunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.