Kannast ekki við að strandað hafi á sjálfstæðismönnum 13. maí 2008 11:49 Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. MYND/GVA
Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, kannast ekki við að það hafi strandað á sjálfstæðismönnum að breyta eftirlaunalögunum umdeildu á vordögum 2006. Guðni Ágústson, formaður Framsóknarflokksins, heldur því fram í Fréttablaðinu í dag að Halldór Ásgrímsson, þáverandi formaður Framsóknarflokksins, hafi reynt að ná samstöðu um málið á þeim tíma en það hafi strandað á andstöðu sjálfstæðismanna. Arnbjörg segir að Guðni þurfi að útskýra mál sitt betur því hún kannist ekki við að lagt hafi verið fram frumvarp um málið á þessum tíma. „Það getur verið að þetta hafi komið til tals á öðrum vígstöðvum en ég þekki til en það var ekkert sem var lagt fyrir þingflokkinn," segir Arnbjörg. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, lýsti því yfir um helgina að frumvarp um breytingar á eftirlaunum æðstu embættismanna sé í smíðum og hugsanlegt sé að það komi fyrir þingið fyrir þinglok. Þar eigi meðal annars að afnema lagaákvæði um að menn geti bæði verið á eftirlaunum og þegið laun fyrir annað starf. Aðspurð um stuðning við slíkt frumvarp innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins segir Arnbjörg að þingflokkurinn hafi ekki séð það og umræða um málið hafi ekki farið fram. Hún bendir þó á að þingflokkurinn hafi samþykkt stjórnarsáttmála sem geri ráð fyrir breytingum á lögunum en umræður um frumvarpið fari fram þegar það líti dagsins ljós.
Mest lesið Tveir ferðamenn fundust látnir á Edition Innlent Frönsk kona grunuð um að bana dóttur sinni og eiginmanni Innlent Rannsaka „alvarlegt atvik“ á Edition Innlent Sigfús Aðalsteinsson: Trömpistinn sem vill bjarga Íslandi Innlent Tveir ríkisþingmenn skotnir á heimilum sínum Erlent Sinueldur kviknaði út frá brennandi rusli: „Erum pínulítið pirraðir á þessu“ Innlent „Þetta eru alvarlegir stunguáverkar“ Innlent Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Innlent Flúði á brott eftir alvarlega líkamsárás Innlent Spáir því að Fljótagöng verði næstu jarðgöng Innlent Fleiri fréttir Brautskráði soninn á síðustu útskriftinni Nýtt dæluhús veldur óánægju á Selfossi „Þetta eru alvarlegir stunguáverkar“ Segir landráðskæru fráleita: „Þetta er mjög hættuleg þróun fyrir íslenskt samfélag“ Hin grunaða með stunguáverka og blindflug án samræmds námsmats Frönsk kona grunuð um að bana dóttur sinni og eiginmanni Sinueldur kviknaði út frá brennandi rusli: „Erum pínulítið pirraðir á þessu“ Tveir ferðamenn fundust látnir á Edition Meirihlutinn spari mínútur til að kasta klukkutímum á glæ Alvarlegt atvik á Edition og veiðigjaldafrumvarpið afgreitt úr nefnd Rannsaka „alvarlegt atvik“ á Edition Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Sigfús Aðalsteinsson: Trömpistinn sem vill bjarga Íslandi Bókun 35 aftur rædd fram á nótt Spáir því að Fljótagöng verði næstu jarðgöng Flúði á brott eftir alvarlega líkamsárás Selja sinn sögufrægasta grip til að lifa af sumarið Sofnaði undir stýri og svipt bílprófinu í hálft ár Benz brann í Breiðholti Minnihlutinn mætir ekki á morgun Vilja milljarð frá First Water sem hafnar vanefndum Allt á suðupunkti á Alþingi, árásir í Íran og fágætur flygill Selma nýr skólameistari á Króknum Hafa enga hugmynd hve lengi segulómstækið verður ónothæft Þórdís kemur Þorgerði til varnar: „Birtingarmynd pólitískra öfga“ Skúringatæki pikkfast utan á eina segulómtækinu á Hringbraut Stofnandi Viðreisnar segir Daða seilast í vasa almennings Burðardýr með þrettán kíló í farangrinum hlaut þungan dóm Sverrir Jónsson ráðinn skrifstofustjóri Alþingis Þyrlan afturkölluð og hinn slasaði sóttur á björgunarskipi Sjá meira