Innlent

Kynferðisbrotamaður fékk vægari dóm vegna drátts á rannsókn

Karlmaður á fimmtugsaldri var í Hæstarétti í dag dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn konu en hann nýtti sér svefndrunga og ölvunarástand hennar og reyndi að hafa við hana kynferðismök.

Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess að maðurinn vissi að konan hafði átt við erfiðan geðsjúkdóm að stríða og að brotið mundi hafa verulegar andlegar afleiðingar fyrir hana.

Þótti refsing mannsins því hæfilega ákveðin fangelsi í tólf mánuði en þar af voru níu mánuðir skilorðsbundnir með hliðsjón af verulegum drætti sem varð á rannsókn málsins.

Þetta er vægari dómur en sá sem héraðsdómur felldi en þar voru allir 12 mánuðurnir óskilorðsbundnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×