Enski boltinn

Liverpool ætlar að koma með hærra tilboð í Barry

Elvar Geir Magnússon skrifar
Barry í leik með Aston Villa.
Barry í leik með Aston Villa.

Liverpool ætlar að koma með nýtt tilboð í Gareth Barry, miðjumann Aston Villa. Villa neitaði þrettán milljón punda tilboði Liverpool í leikmanninn samkvæmt heimildum BBC.

Barry hefur gefið það skýrt í ljós að hann vilji ganga til liðs við Liverpool en það er átján milljón punda verðmiði á honum. Liverpool vonast til að selja Xabi Alonso til Juventus til að aðstoða við fjármagn á kaupunum

Barry er efstur á óskalista Liverpool í sumar og ljóst að félagið mun ekki auðveldlega gefast upp í baráttunni um hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×