Fólskuleg líkamsárás á Þjóðhátíð Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. ágúst 2008 14:07
Karlmaður um tvítugt varð fyrir fólskulegri líkamsárás í Vestmannaeyjum um hálftvö leytið í nótt. Maðurinn sagðist í samtali við Vísi hafa verið að dansa við stóra sviðið þegar þrír menn hafi komið að honum. Hann hafi verið tekinn kverkataki og snúinn niður. Árásarþolinn, sem ekki vill láta nafn síns getið, sagði að mennirnir hefðu sagst vera lögreglumenn. Hann hafi hins vegar séð að þeir væru undir áhrifum fíkniefna og því vitað að þeir væru að villa á sér heimildir. „Ég var skallaður og dreginn á bak við skúr þar sem þeir kýldu mig í andlitið og í magann," segir maðurinn í samtali við Vísi. Hann segir að mennirnir hafi tekið af sér veski með flugmiða, 35 þúsund krónum, debetkorti og fleiru. Hann hafi rifið sig lausan og reynt að hlaupa í burtu en þá hafi hann dottið og mennirnir náð honum aftur. Við það hafi þeir ógnað honum með hnífi og hótað að drepa hann. Maðurinn segir að fjöldi fólks hafi orðið vitni að árásinni en enginn þorað að bregðast við. Hann segir jafnframt að næg gæsla sé á Þjóðhátíð en því miður hafi enginn gæslumaður verið nálægur þegar árásin varð. Maðurinn segist vera bólginn og sár í andliti. Hann sitji jafnframt eftir slippur og snauður. „Það er voða lítið sem ég get gert. Ég er bara allslaus hérna," sagði maðurinn í samtali við Vísi. Hann gerir þó ráð fyrir að vera áfram í Eyjum. Lögreglan í Vestmannaeyjum staðfestir að árásarþolinn hafi gefið skýrslu vegna árásarinnar.
Mest lesið Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent 51 prósent sé nóg Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Svandís segir nei Innlent „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Erlent Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Innlent Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Innlent „Það bara fannst ekki neitt“ Innlent Fleiri fréttir Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Neitaði að gefa upp persónuupplýsingar Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Hnífjafnt í nýrri könnun Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Sjá meira