Lífið

Tónleikar Bubba studdir af nýstofnuðum samtökum

Bubbi Morthens
Bubbi Morthens

Samtökin Ísland Panorama hafa verið stofnuð til þess að vinna gegn kynþáttafordómum. Í yfirlýsingu frá félaginu kemur fram að nauðsynlegt sé að koma í veg fyrir atburði við þá sem við höfum orðið vitni að upp á síðkastið.

Yfirlýsingu frá félaginu má sjá hér að neðan:



Atburðir síðustu daga þar sem fólk af erlendum uppruna hefur orðið fyrir kynþáttafordómum og jafnvel líkamlegum meiðingum eru mikið áhyggjuefni. Þetta er bæði sorglegt og dapurlegt!

Samtökin Ísland Panorama eru stofnuð til þess að vinna gegn kynþáttafordómum. Við viljum nota tækifærið sem hér gefst, til að sýna samstöðu í baráttunni gegn kynþáttafordómum. Það er nauðsynlegt að koma í veg fyrir atburði á borð við þá sem við höfum orðið vitni að upp á síðkastið. Ofbeldi má aldrei samþykkja eða líta framhjá.

Ofbeldi gegn saklausu fólki, vegna haturs, er glæpur sem ekki verður litið framhjá eða þagaður í hel. Samvisku og virðingar okkar vegna verðum við að koma í veg fyrir þróun af því tagi. Það er mikilvægt að fram fari opinská umræða um fordóma, sem oftar en ekki eru sprottnir af fáfræði og skorti á skilningi. Íslendingar eru upplýst og vel menntuð þjóð, með sterka réttlætiskennd og hefur verið háttur þeirra að koma vel fram við náungann. Við hvetjum Íslendinga til að taka höndum saman og berjast gegn ofbeldi og mismunun.

Tökum því fagnandi þessu frábæra framtaki Bubba Morthens, sem ásamt öðrum listamönnum, leggur sitt af mörkum í baráttunni fyrir heilsteyptara samfélagi, okkur öllum til hagsbóta.

Það er sama hver uppruni okkar er, það sem við eigum sameiginlegt er mun meira en það sem skilur okkur að. Ísland Panorama styður framtak Bubba og leggur málefninu einróma lið. Við hvetjum alla til að mæta á tónleikana og sýna þannig í verki samstöðu gegn kynþáttafordómum. Byggjum betra samfélag! Látum verkin tala og útrýmum RASISMA á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.