Lífið

Íslenskar flugfreyjur á ljósmyndasýningu í New York

Ein af myndum Finke af flugfreyjum Icelandair.
Ein af myndum Finke af flugfreyjum Icelandair.

Íslenskar flugfreyjur eru áberandi á nýrri ljósmyndasýningu bandaríska ljósmyndarans Brian Finke sem opnuð verður þann 21. febrúar í Clamp Art safninu í New York.

Finke þessi er velþekktur og vel metinn ljósmyndari sem árið 2006 ferðaðist vítt og breitt um heiminn til þess að mynda flugfreyjur. Hann kom að sjálfsögðu við á Íslandi enda íslenskar flugfreyjur þekktar um víða veröld fyrir þokka og glæsileika.

Á Íslandi tók Finke nokkrar ljómyndir af flugfreyjum frá Icelandair við leik og störf. Afraksturinn verður svo sýndur á sýningu hans í New York en jafnframt verður gefin út bók með myndum hans.

Nánari upplýsingar um þessa skemmtilegu sýningu má sjá hér






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.