Þungt hljóð í lögreglumönnum á suðurnesjum 10. mars 2008 19:20
Lögreglumenn á Suðurnesjum óttast niðurskurð og aukið álag vegna fjárskorts lögregluembættisins. Formaður Lögreglufélags Suðurnesja segir þungt hljóð vera í mönnum og býst að öllu óbreyttu við flótta úr starfsstéttinni. Í rekstraráætlun lögregluembættisins á Suðurnesjum fyrir þetta ár er gert ráð fyrir aukakostnaði upp á 200 milljónir umfram fjárheimildir. Dómsmálaráðuneytið óskaði eftir skýringum frá embættinu vegna þessa og funduðu fulltrúar embættisins með ráðherra í morgun. Þar var meðal annars lögð fram ný rekstraráætlun með tillögum til lausna. Samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu er málið nú í vinnuferli og hefur engin ákvörðun verið tekin og hefur annar fundur verið boðaður á morgun. Lögreglumenn á Suðurnesjum eru uggandi yfir þróun mála enda ljóst að ef rekstaráætlun á að vera innan ramma fjárheimilda kemur til verulegs niðurskurðar.Það muni fyrst og fremst bitna á starfsmönnum enda séu laun og launatengdur kostnaður um 80 prósent af rekstrarkostnaði embættisins. Jón Halldór Sigurðsson, formaður Lögreglufélags Suðurnesja, sagði í samtali við fréttastofu embættið vera nú þegar undirmannað og álag mikið á lögreglumenn. Framundan séu miklir annatímar meðal annars vegna aukinnar flugumferðar í sumar. Hann segir fólk nú óttast uppsagnir og aukið álag og því séu sumir farnir að hugsa sér til hreyfings. Þá segir hann félagið lýsa yfir fullum stuðningi við lögreglustjóra Suðurnesja og hvetur ráðherra til að finna farsæla lausn á málinu sem allra fyrst.
Mest lesið Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Innlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Innlent Fleiri fréttir Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Sjá meira