Lífið

Rændu glás af Playboy púðum

Flutningalest í Suður-Frakklandi varð á dögunum fyrir barðinu á harðsvíruðum ræningjum. Lestin nauðhemlaði þegar hún kom að hindrunum sem glæponarnir höfðu komið fyrir á teinunum í úthverfi Marseille. Þeir brutu sér leið inn í vagnana og höfðu á brott stóra sendingu af púðum með Playboy merkinu. Að því búnu flúðu þeir, og fannst brunninn bíll þeirra skömmu síðar

Að sögn lögreglu á svæðinu er ekki vitað hvort fleiru var stolið.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.