Eitthvað hefur brostið í starfsemi KEA 10. mars 2008 12:39
Eitthvað hefur brostið í starfsemi KEA og helstu ráðamenn eru bæði sjálflægir og einangraðir. Þetta segir fyrrverandi stjórnarformaður félagsins. Benedikt Sigurðarson hefur setið í stjórn KEA í mörg ár og var síðast formaður félagsins árið 2006. Síðan hefur sigið á ógæfuhliðina að mati hans þrátt fyrir að hagnaður hafi verið tæpur milljarður í fyrra. Á aðalfundi KEA um helgina gekk hann úr stjórninni og fór í leiðinni þungum orðum í ræðu um forystu félagsins, einkum Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóra og Hannes Karlsson, formann stjórnar. Ræðuna hefur Benedikt birt á heimasíðu sinni, bensi.is og segir þar að KEA hafi misst frumkvæði sitt í samfélagsverkefnum og sinni ekki félagsmönnum sínum nægilega. Ráðamennirnir séu enda bæði sjálflægir og einangraðir. „Framkvæmdastjóri og stjórnarformaður glutruðu niður tækifærum fyrir KEA í tengslum við söluna á Norðlenska. Með klaufaskap og einhvers konar neikvæðni forystumanna KEA brast traust framleiðenda í Búsæld á samstarfinu við KEA og með því glutruðu okkar menn niður hagsmunum fyrir félagið," segir Benedikt svo dæmi sé tekið úr ræðu hans. Mörg sæti kjörinna fulltrúa KEA voru auð á aðalfundinum og segir Benedikt að eitthvað hafi brostið í starfsemi félagsins. „Hér hefur forysta félagsins brugðist og ætti að draga af því lærdóma. Stjórn og starfsmenn félagsins þurfa að taka sig á - - - það hefur aldrei komið fyrir að meira en fjórðungur aðalfundarfulltrúa láti aðalfund KEA fram hjá sér fara." Nokkrar breytingar voru gerðar á samþykktum KEA á fundinum, meðal annars sú að félagið er nú skilgreint sem fjárfestingarfélag. Hannes Karlsson stjórnarformaður segir stöðu KEA og þá ekki síst lausafjárstöðu svo sterka að bankar hafi falast eftir lánum hjá félaginu. Hannes vill ekki svara gagnrýni Benedikts.
Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Innlent Fleiri fréttir Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Um 36 prósent getur ekki horft á mynd án þess að fara í símann Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Sjá meira