Lífið

Foreldrar Spears óttast um líf hennar

Britney Spears sést hér í bíl í Los Angeles í gær skömmu eftir að hún var útskrifuð.
Britney Spears sést hér í bíl í Los Angeles í gær skömmu eftir að hún var útskrifuð. MYND/AP

Foreldrar bandarísku söngkonunnar Britney Spears eru allt annað en sáttir við að dóttir þeirra hafi verið útskrifuð af sjúkrahúsi í gær.

Spears komst af spítalanum fram hjá vökulu auga fjölmiðlanna vestan hafs en ekki hafði verið búist við að hún yrði útskrifuð fyrr en eftir viku vegna veikinda sinna. Blaðasnápar voru þó ekki lengi að hafa upp á henni og sást til hennar aka um götur Los Angeles ásamt óþekktum manni og sveimuðu papparassar allt í kringum bílinn.

Söngkonan var lögð inn á spítala þann 31. janúar þar sem hún átti að gangast undir þriggja sólarhringa sálfræðimat og svo var búist við að hún yrði tvær vikur til viðbótar á spítalanum. Af því varð hins vegar ekki.

Söngkonan unga hefur ekki átt sjö dagana sæla síðustu misseri. Hún hefur glímt við vímuefnavanda og missti forræði yfir sonum sínum. Þá komst dómstóll að því nýlega að umboðsmaður hennar, Sam Lufti, mætti ekki koma nálægt henni eftir að móðir Britneyjar sagði sakaði hann um að byrla dóttur sinni ólyfjan.

Foreldrar hennar, Jamie og Lynne Spears, lýstu í dag yfir miklum áhyggjum af dóttur sinni. ,,Við höfum miklar áhyggjur af öryggi dóttur okkar og teljum að hún sé í lífshættu," segja þau og fara fram á það að dómstólar grípi inn í málið.

Faðirinn fer sem stendur með yfirumsjón með fjármálum hennar þar sem ekki var talið að hún hefði heilsu til þess að sjá um þau sjálf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.