Erlent

Fundu hof frá tímum fyrir Inkanna í Perú

Fornleifafræðingar í Perú hafa fundið hof sem er frá því fyrir tíma Inkanna.

Í hofi þessu eru ellefu herbergi þar sem talið er að múmíur eða líkneski hafi verið geymd. Samhliða þessu fundust leifar af ævafornu vegakerfi og vatnsveitu.

Hofið fannst í suðurhluta Perú sem er þekkt fyrir fornminjar þar á meðal hinar frægu Machu Picchu rústir. Enn er beðið niðurstöðu úr aldurgreiningu á hofinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×