Erlent

Vilja endurtaka kosningar í Flórída og Michigan

Demókratar í Michigan og Flórída eru nú að leita leiða til að endurtaka forkosningarnar þar með þeirri breytingu að kjörmenn úr þeim hafi atkvæðisrétt á flokkþingi flokksins í ágúst.

Flestir telja þó að minni líkur en meiri séu á að þetta takist. Sem kunnugt er af fréttum afnám landsstjórn Demókrata atkvæðisréttinn eftir að ríkin tvö breyttu kosningadögum sínum. Clinton vann í báðum ríkjunum en horfa ber til að hún var sú eina á kjörseðlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×