Bíó og sjónvarp

Cannes-hátíðin hafin

Páll Baldvin Baldvinsson skrifar
Rúnar Rúnarsson á mynd í keppni stuttmynda um Gullpálmann í Cannes.
Rúnar Rúnarsson á mynd í keppni stuttmynda um Gullpálmann í Cannes.
Kvikmyndahátíðin í Cannes er hafin og streymir þangað margt stórmennið. Íslenska stuttmyndin Smáfuglar (2 Birds) eftir Rúnar Rúnarsson hefur verið valin í aðalkeppni hátíðarinnar og keppir því um Gullpálmann í ár. Þetta er í annað sinn sem íslensk stuttmynd er valin til keppni í Cannes, en árið 1993 keppti stuttmynd Ingu Lísu Middleton, Ævintýri á okkar tímum, um Gullpálmann. Verðlaunaafhendingin fer fram sunnudaginn 25. maí, en þá er lokahóf kvikmyndahátíðarinnar.

Samhliða kvikmyndahátíðinni er í Cannes mjög öflugur kvikmyndamarkaður þar sem kaupendur og seljendur kvikmynda alls staðar að úr heiminum koma saman. Fimm íslenskar kvikmyndir verða sýndar að þessu sinni á markaðssýningum í Cannes en það eru Astrópía (Gunnar B. Guðmundsson), Duggholufólkið (Ari Kristinsson), Veðramót (Guðný Halldórsdóttir), The Amazing Truth About Queen Raquela (Ólafur De Fleur Jóhannesson) og Skrapp út (Sólveig Anspach). Tvær síðastnefndu myndirnar hafa enn ekki verið sýndar á Íslandi.

Magnús Viðar Sigurðsson verður fulltrúi Íslendinga í „Producer on the move", en það er viðburður þar sem framleiðendur alls staðar að úr Evrópu koma saman og kynna sig og myndir sínar, ræða framtíðarverkefni og vinna að því að fá nýja aðila að verkum sínum.

Starfsmenn Kvikmyndamiðstöðvar Íslands eru á svæðinu framleiðendum til halds og trausts, en miðstöðin hefur um langt skeið verið þátttakandi í markaðssetningu íslenskra kvikmynda í Cannes.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×