Biðja að heilsa drottningunni 29. júní 2008 05:00 Fulltrúar Kiwanisklúbbsins Höfða, þeir Jakob Marinósson, Sigurður Pálsson, Kristinn Kristinsson forseti og Hjörleifur Jónsson, afhenda Rakel styrk upp á 100.000 krónur. MYND/Valli „
Skemmtu þér vel í kóngsins Köben. Við biðjum að heilsa drottningunni,“ sagði Kristinn Kristinsson, forseti Kiwanisklúbbsins Höfða í Grafarvogi, þegar hann afhenti Rakel Árnadóttur 100.000 króna styrk í Danmerkursjóð hennar. Eins og kom fram í Fréttablaðinu í síðustu viku stendur Rakel, sem er fötluð vegna heilalömunar (cerebral palsy), fyrir fjársöfnun til að komast í ferðalag til Danmerkur í sumar. Rakel var þeim Höfða-mönnum afar þakklát fyrir þessa rausnarlegu aðstoð. Hún sagðist vera farin að hlakka mikið til ferðarinnar, enda ein mesta áhugamanneskja um Danmörku á landinu. Kristinn las umfjöllun Fréttablaðsins um söfnun Rakelar. Klúbburinn ákvað í framhaldinu að veita henni aðstoð. „Við sáum að þarna var á ferð Grafarvogsbúi sem þurfti á hjálp að halda. Það er okkur ljúft og skylt að veita hana og gaman að Rakel komist í draumaferðalagið sitt,“ segir Kristinn. Höfði hefur starfað í átján ár og styrkir margvísleg málefni í Grafarvogi og víðar. Klúbburinn er meðal annars styrktaraðili sérnámsbrautar í Borgarholtsskóla og umsjónaraðili barnaklúbbs í Engjaskóla, auk þess að styðja dyggilega við langveik börn, sambýli fatlaðra og ýmis félagasamtök. Meðlimir eru 32 talsins og Kristinn hvetur alla sem hafa áhuga á starfi klúbbsins að hafa samband og kynna sér málið.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Fleiri fréttir Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Sjá meira