Erlent

Metmagn af heróíni fannst í Kent

Heróín
Heróín

Lögreglan í Englandi handtók í morgun þrjá menn eftir að umgangsmikil aðgerð leiddi hana að bíl í Kent þar sem í fundust heil 350 kíló af heróíni. Þetta er metmagn að sögn lögreglu en götuvirði efnanna eru talið vera tæpir þrír milljarðar króna.

Tveir menn búsettir í London, Harminder Chana og Atif Khan voru handteknir í aðgerðunum í morgun ásamt Hollendingi að nafni Patrick Kuster.

Chana og Kuster voru handteknir í Kent þar sem bíllinn með heróíninu fannst en Khan var handtekinn skömmu síðar í Austur London

Lögreglan í Englandi segist með þessari aðgerð hafa komið upp um flókinn og vel skipulagðan eiturlyfjainnflutning sem hafi skaffað metmagni af heróíni til Englands um nokkurt skeið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×