Handvömm að ráðherra fundaði ekki með nefnd fyrir Búkarestferð 2. apríl 2008 15:19 MYND/Anton
Handvömm virðist hafa ráðið því að utanríkisráðherra fundaði ekki með utanríkismálanefnd Alþingis áður en hún hélt á leiðtogafund Atlantshafsbandlagsins í Búkarest í dag. Þetta sagði Árni Páll Árnason, varaformaður utanríkismálanefndar á Alþingi. Steingrímur J. Sigfússon, fulltrúi Vinstri - grænna í nefndinni, kvaddi sér hljóðs á þingfundi og benti á að hann hefði á mánudag óskað eftir fundi í nefndinni með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra áður en hún færi til Búkarest. Þar myndi hún skýra frá því hvaða sjónarmið hún og forsætisráðherra færu með fyrir Íslands hönd á NATO-fundinn. Þessum fundi utanríkismálanefndar hefði ekki verið unnt að koma við og þegar fundur utanríkismálanefndar hafi verið haldinn í morgun hafi Ingibjörg Sólrún og Geir verið farin af landi brott með flugvél eins frægt væri orðið. Gagnrýndi Steingrímur að utanríkismálanefnd hefði verið sniðgengin í málinu, en óvenjumörg og óvenjustór mál væru á dagskrá NATO-fundarins í Búkarest. Nefndi Steingrímur meðal annars aðild Georgíu og Úkraínu að bandalaginu, eldflaugavarnarkerfi Bandaríkjanna og stöðuna í Afganistan í því samhengi. Sagði Steingrímur ráðherra hafa hunsað lögbundna samráðsskyldu sína við utanríkismálanefnd. Árni Páll Árnason, varaformaður utanríkismálanefndar og flokksbróðir utanríkisráðherra, sagði rétt að Steingrímur hefði óskað eftir fundi í nefndinni áður en leiðtogafundur NATO hæfist. Sagðist hann undirstrika að utanríkisráðherra hefði markað stefnu um aukið samráð við utanríkismálanefnd og vildi rækja það með virkum hætti. Hér virtist hins vegar hafa orðið handvömm. Sagði hann ekki æskilegt að utanríkisnefnd skyldi ekki upplýst um stefnumörkun ríkisstjórnar fyrir fundi eins og fund NATO. Batt hann vonir við að ráðherra myndi funda með utanríkismálanefnd þegar heim væri komið. Í svipaðan streng tók Ragnheiður Elín Árnadóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í utanríkismálanefnd. Hún sagðist taka undir með Steingrími J. Sigfússyni að utanríkisráðherra hefði átt að koma á fund nefndarinnar. Það hlyti að vera sá háttur sem horft skyldi til.
Mest lesið Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Erlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Sautján ára drengur lést í snjóflóði Erlent Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Erlent „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði Erlent Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði Erlent Fleiri fréttir Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Sjá meira