Innlent

Búa í gámi í miðbænum

Tvær til þrjár manneskjur hafa búið í gámi við Bergstaðastræti í Reykjavík síðastliðnar vikur. Íbúar við götuna eru orðnir þreyttir á ónæði og sóðaskap sem fylgir fólkinu. Kári Halldór, íbúi við götuna, segir fólkið hafa búið í gámnum með leyfi verktakans sem er að gera húsið upp.

Hann segist hafa séð íbúa gámsins henda rusli og úrgangi úr fötum út fyrir gáminn og í grunn hússins númer 16. Þá sé stundum ónæði af fólkinu þegar það verður ósátt og lemur gáminn að utan. Hann gagnrýnir yfirvöld fyrir að ekki skuli heimildir fyrir lögreglu til að takast á við mál af þessu tagi. Þannig geti eftirlitslausar neyslumiðstöðvar sprottið upp víða um borgina.

Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar eru ekki heimildir fyrir því að gera mikið í málinu sé fólkið á lóðinni með leyfi eigandans. Það séu fullgild rök að fólk gæti eigna sinna. Það sé hins vegar í höndum heilbrigðiseftirlitsins ef sóðaskapur sé af íbúum gámsins.

Rósa Magnúsdóttir deildarstjóri hollustuhátta hjá Heilbrigðiseftirlitinu segir að fulltrúi eftirlitsins hafi farið á staðinn eftir fréttir af málinu í dag. Lóðin hafi verið skoðuð og málið sé í rannsókn.

Hún segir að almenningur geti haft samband ef það telji sig búa við heilsuspillandi aðstæður. Þau sendi þá fulltrúa á staðinn sem skoði og meti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×