Lífið

Býst við góðu áhorfi á Mannaveiðar

Ólafur Darri Ólafsson og Gísli Örn Garðarsson í hlutverkum sínum.
Ólafur Darri Ólafsson og Gísli Örn Garðarsson í hlutverkum sínum. MYND/Reykjavikfilms.is

Fyrsti þáttur spennumyndaflokksins Mannaveiða verður sýndur í Sjónvarpinu í kvöld. Björn Brynjúlfur Björnsson framleiðandi og leikstjóri þáttanna segist búast við svipuðu áhorfi og á sakamálaþættina Pressu sem sýndir voru á Stöð tvö í byrjun árs. Áhorf á þá var rúmlega 30 prósent.

Hann vonast til að Íslendingar hafi jafn gaman af Mannaveiðum; „Ég held að áhorfið (á Pressuna) endurspegli það sem við kvikmyndagerðarmenn höfum sagt að á Íslandi sé sérstakur áhugi á íslensku efni.“

Sagan fjallar um eltingarleik við íslenskan raðmorðingja. Gísli Örn Garðarsson og Ólafur Darri Ólafsson fara með tvö helstu aðalhlutverk tveggja rannsóknarlögreglumanna í sex manna teymi. Auk þeirra fara Björn Thors, Charlotta Böving, Halldóra Björnsdóttir og Laufey Elíasdóttir með hlutverk í þáttunum. Atburðarrásin gerist á einni viku.

„Þættirnir hafa lagst vel í þá sem hafa séð,“ segir Björn en hann hefur sýnt fólki sem ekki þekkir söguna og fengið viðbrögð þeirra.

Sveinbjörn I. Baldvinsson skrifaði handritið af þáttunum eftir sögunni Aftureldingu eftir Viktor Arnar Ingólfsson.

Auk framangreindra leikara koma margir aðrir fram, meðal annars Hilmir Snær Guðnason, Elva Ósk Ólafsdóttir, Þórunn Lárusdóttir, Gunnar Eyjólfsson, Sigurður Skúlason og Þorseinn Gunnarsson.

Björn segir dálítið blendið að sleppa hendinni af verkefninu. „Það er eins og allt sem maður er á kafi í í langan tíma. Bæði er gaman að klára það, en ákveðinn söknuður að fara frá því.“ Hann bætir við að nú séu þættirnir ekki lengur í hans höndum og því annarra að hafa skoðun á þeim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.