Mannabein fundust í Kjósarhreppi 24. mars 2008 12:22
Hlutar úr hauskúpu fundust á víðavangi í Kjósarhreppi í gærkvöldi. Frumrannsókn á hlutunum leiddi í ljós að beinin eru um tíu til þrjátíu ára gömul. Rannsókn lögreglu er á frumstigi en talið er að beinin séu úr konu eða barni. Það var um kvöldmatarleitið í gær sem maður gekk fram á beinin og hafði strax samband við lögreglu. Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kom á staðinn ásamt ljósabíl slökkviliðsins til að rannsaka vettvanginn en engin fleiri bein fundust á staðnum. Læknir sem gerði frumrannsókn á höfuðkúpubrotunum telur að þau séu úr konu eða barni sem hafi látist fyrir um 10-30 árum. Frá málinu var fyrst greint á fréttavef Kjósarhrepps en umsjónarmaður hans er Sigurbjörn Hjaltason. Hann fór á staðinn í gær og sagði í samtali við fréttastofu í morgun að málið sé allt hið undarlegasta. Enginn kirkjugarður sé í grennd við staðinn þar sem beinin fundust sem lágu á jörðinni. Hann sagði lögregluna hafa farið með beinin til Reykjavíkur til frekari rannsókna. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er ekki útilokað að beinin séu úr Saurbæjarkirkjugarði en þar varð landbrot fyrir nokkrum árum og vitað að börn hafi tekið bein úr því. Hins vegar sé ljóst að þar hefur enginn verið jarðsettur síðast liðinn 30 ár og því mikilvægt fyrir framhald rannsóknarinnar að komast að því með vissu hve gömul beinin séu. Tæknideild lögreglunnar mun rannsaka vettvanginn betur í dag og framhaldinu verður tekin ákvöðrun um hvort málið telst sakamál eða ekki.
Mest lesið Segjast komnir með nóg og ætla að gæta að framtíð Íslands Innlent Einfaldlega nýnastistar sem þýði meira ofbeldi og átök Innlent Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Innlent Aðstæður þær bestu síðan 2021: Bílastæði við eldgosið að fyllast Innlent Óhollt magn brennisteinsdíoxíðs á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Innlent Lögreglan lýsir eftir Sindra Péturssyni Innlent Fundurinn vonbrigði: „Þetta leikrit er hafið“ Innlent Salibuna á sirkustjaldinu og lélegir listamenn Innlent Hæsta gildi brennisteinsdíoxíðs frá upphafi eldsumbrota Innlent Stal bíl og keyrði um flugbrautirnar Innlent Fleiri fréttir Hefur áhyggjur af málflutningi „taugaveiklaðrar“ stjórnarandstöðu Lokuð inni með lokað fyrir glugga í þrjá daga Fundurinn vonbrigði: „Þetta leikrit er hafið“ Búin að vera lokuð inni í þrjá daga vegna gosmóðunnar Vopnað rán og skartgripaþjófnaður í Reykjavík Einfaldlega nýnastistar sem þýði meira ofbeldi og átök Lögreglan lýsir eftir Sindra Péturssyni Fordæma Hamas og segja áform um „mannúðarborg“ óviðunandi Stofna grunnskóla fyrir einhverf börn í Garðabæ Loftgæði versnandi á gosstöðvunum Segjast komnir með nóg og ætla að gæta að framtíð Íslands Sex spænskar orrustuþotur á leið til landsins Hafa tapað tvö hundruð milljónum króna vegna fjársvika Hafa sótt um bráðabirgðaleyfi Vill vita hvaða samningar eru í undirbúningi gagnvart ESB Verði fram á nótt að slökkva eld í trjákurlinu Geta greint frá svörum Þorgerðar ef hún gefur leyfi Stal bíl og keyrði um flugbrautirnar „Það þarf ekki alveg að halda sig innandyra“ „Þetta eru markvissar aðgerðir til að brjóta niður menntastofnanir“ Aðstæður þær bestu síðan 2021: Bílastæði við eldgosið að fyllast Mesta mengun frá upphafi eldsumbrota og deilt um utanríkismálin Tveggja katta enn saknað eftir eldsvoða á Tryggvagötu Hæsta gildi brennisteinsdíoxíðs frá upphafi eldsumbrota Enn unnið í því að slökkva í trjákurlinu Enginn Vinnuskóli í Reykjavík í dag vegna gosmengunar Haldlagning á ketamíni hundraðfaldast á fjórum árum Salibuna á sirkustjaldinu og lélegir listamenn Óhollt magn brennisteinsdíoxíðs á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Þjóðarhreinsun eigi sér stað í heimalandinu Sjá meira