Gagnrýna lyfjagreiðslunefnd fyrir villandi tilkynningar 19. mars 2008 14:48 MYND/Stefán
Samtök verslunar og þjónustu gagnrýna lyfjagreiðslunefnd fyrir tilkynningar nefndarinnar til fjölmiðla þar sem borið er saman heild- og smásöluverð á lyfseðilskyldum lyfjum á Íslandi og annars staðar á Norðurlöndum. Benda þau á að hvergi komi fram að lyfjagreiðslunefnd ákveði heildsölu- og smásöluverð þessara lyfja hér á landi. Það sé eðilegt að einhver annar en nefndin sjálf leggi mat á það hvort nefndin sinni sínu hlutverki. Samtök verslunar og þjónustu benda enn fremur á að verðsamanburður á 20 kostnaðarsömustu lyfjunum á Íslandi, í Danmörku, Svíþjóð og Noregi sýni að þau séu að meðaltali 7,5 prósentum dýrari í Danmörku en hér á landi, 6,9 prósentum ódýrari í Noregi en hér og 2,7 prósentum dýrari í Svíþjóð en hér. Til viðbótar veiti íslensk apótek mismunandi afslátt frá opinberu verði vegna samkeppni þeirra á milli en í Danmörku, Noregi og Svíþjóð sé bannað að veita afslátt af lyfseðilsskyldum lyfjum. „Þess ber þó að geta að einstök lyf eru mun dýrari hér og önnur mun ódýrari, auk þess sem gengi gjaldmiðla á hverjum tíma hefur áhrif. Sem dæmi má nefna að daginn sem verðsamanburðurinn var gerður kostuðu 30 töflur af Casodex, hormónalyfi sem er algengt í krabbameinsmeðferð, sem svarar 56.309 kr. í Danmörku en 48.514 kr. á Íslandi. Þar er verðmunurinn 7.795 kr. íslenskum apótekum í vil. Aftur á móti kostuðu 98 töflur af Simvastatin, lyfi sem er blóðfitulækkandi, sem svarar 2.101 kr. í Danmörku en 4.239 kr. á Íslandi. Þær eru með öðrum orðum 2.138 kr. dýrari hér en í Danmörku," segir í tilkynningu SVÞ.
Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Fleiri fréttir Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Sjá meira